Óvænt úrslit urðu í Egilshöllinni í Grafarvogi í kvöld þegar Fjölnir hafði betur gegn Skautafélagi Akureyrar í Topp-deild kvenna eftir skemmtilegan og spennandi leik.
Fjölnir vann upp tveggja marka forskot í leiknum því SA komst í 3:1. Með því að skora tvívegis í síðasta leikhlutanum tókst Fjölni að knýja fram framlengingu. Þar var ekki skorað og úrslitin réðust í vítakeppni þar sem Fjölnir fékk aukastigið.
Fjölnir skoraði fyrsta markið í upphafi leiks og það gerði Laura-Ann Murphy en hún átti stórleik í kvöld. Skoraði tvívegis, átti stoðsendingu og nýtti vítið sitt í vítakeppninni.
Meira þarf til að slá sigursæla Akureyringa út af laginu en mark í upphafi leiks og áður en fyrsta leikhlutanum lauk var staðan orðin 3:1 fyrir gestina að norðan. Guðrún Ásta Valentine, Silvía Rán Björgvinsdóttir og Kolbrún Garðarsdóttir kvittuðu fyrir SA.
Ekkert var skorað í öðrum leikhlutanum og útlitið var því gott fyrir Akureyringa fyrir síðasta leikhlutann. Líklega hafa fáir búist við því að Fjölni næði einhverju út úr leiknum úr því sem komið var. SA vann leik liðanna í gær 4:0 og burstaði Fjölni fyrr í haust 12:1 og 8:1.
En miðað við leik kvöldsins þá er Fjölnisliðið að sækja í sig veðrið og jafnaði í síðasta leikhlutanum með mörkum frá Lauru-Ann og Elísu Dís Sigfinnsdóttur. Power play-ið var gott hjá Fjölni í venjulegum leiktíma því fyrsta og þriðja markið komu eftir power play.
Í framlengingunni fékk SA tvær brottvísanir og Fjölnir eina en Fjölniskonum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn í framlengingunni. Það kom þó ekki að sök þar sem liðið hafði betur í vítakeppninni 3:2. Þar skoruðu Laura-Ann, Elísa og Flosrún Jóhannesdóttir fyrir Fjölni og Cassandra Goyotte varði þrjú víti SA.
Kollegi hennar í marki SA Marey Viðja Sigurðardóttir varði tvö víti en mörk SA í vítakeppninni gerðu Magdalena Sulova og Ragnheiður Ragnarsdóttir.
SA er eins og áður með yfirburðastöðu í deildinni og hefur ekki tapað leik í venjulegum leiktíma á tímabilinu. Þjálfarinn Emil Algengård er þó líklega örlítið hugsi yfir brottvísunum hjá leikmönnum hans í kvöld. Liðið fékk á sig tvö mörk manni færri og í framlengingunni fékk liðið tvær brottvísanir og lenti fyrir vikið í erfiðri stöðu.
Fjölniskonur fögnuðu sigri á toppliðinu en óneitanlega hefði fleiri úr baklandi þeirra getað orðið vitni að þessum athyglisverðu úrslitum á pöllunum í Egilshöllinni en raunin var.
Mörk Fjölnis: Laura-Ann Murphy 2, Elísa Dís Sigfinnsdóttir.
Stoðsendingar: Sigrún Árnadóttir 2, Laura-Ann Murphy.
Mörk SA: Guðrún Ásta Valentine, Silvía Rán Björgvinsdóttir, Kolbrún Garðarsdóttir.
Stoðsendingar: Sunna Björgvinsdóttir, Magdalena Sulova, Herborg Geirsdóttir.
Myndatexti: Sigrún Árnadóttir átti tvær stoðsendingar hjá Fjölni í kvöld.
Ljósmynd/Bjarni Helgason.
Leikur #9
laugardaginn 28. nóvember 2026 kl.16:45

Fjölnir
4
3

Skautafélag Akureyrar
1. Lota

#40 marey viðja sigurðardóttir

#1 cassandra goyotte

#11 freyja rán sigurjónsdóttir

#13 laura-ann murphy, Stoð: #5 sigrún árnadottir

#5 sigrún árnadottir

#10 guðrún ásta valentine, Stoð: #23 sunna bjorgvinsdottir

#91 silvia bjorgvinsdottir, Án stoðsendinga

#27 kolbrún garðarsdóttir, Stoð: #68 magdalena sulova, #77 herborg geirsdottir
2. Lota
3. Lota

#13 laura-ann murphy

#13 laura-ann murphy, Án stoðsendinga

#23 sunna bjorgvinsdottir

#21 elísa dís sigfinnsdóttir, Stoð: #13 laura-ann murphy, #5 sigrún árnadottir

#7 heiða marín ásmundardóttir
Framlenging

#10 guðrún ásta valentine

#26 solrun assa arnardottir

#25 elín darkoh

#1 cassandra goyotte

#40 marey viðja sigurðardóttir
Vítakeppni

#10 guðrún ásta valentine

#5 sigrún árnadottir

#68 magdalena sulova

#43 flosrun johannesdotti

#23 sunna bjorgvinsdottir

#21 elísa dís sigfinnsdóttir

#27 kolbrún garðarsdóttir

#12 eygló yrsa þórhallsdóttir

#16 ragnheidur ragnarsdottir

#13 laura-ann murphy

#13 laura-ann murphy
