Fjölniskonur unnu sinn fyrsta leik í Toppdeild kvenna þegar þær lögðu SR 1–0 í Egilshöll á fimmtudagskvöld.
Eina mark leiksins kom um miðjan fyrsta leikhluta þegar Flosrún Jóhannesdóttir skoraði. Eftir það spiluðu heimakonur agaðan varnarleik og héldu forystunni út leikinn.
SR sótti mikið en Fjölnir var skipulagður í varnarleiknum og nýtti tækifærið sitt snemma leiks. Hvorugt lið nýtti sér power play og leikurinn var gríðarlega þéttur allt til loka.

Lok lok og læs og allt í stáli (Gunnar Jónatansson)
Markverðirnir bestir á ísnum:
Karítas Halldórsdóttir varði 26 af 26 skotum og var lykillinn að sögulegum sigri Fjölnis. Julianna Thomson varði 20 af 21 skoti hjá SR.
TÖLFRÆÐI:
Fjölnir:
- Flosrún Jóhannesdóttir 1/0
- Karen Þórisdóttir 0/1
- Elín Darko 0/1
Karítas Halldórsdóttir 21/21 (100%)
SR:
Julianna Thomson (SR) 25/26 (96,2%)

(Gunnar Jónatansson)
