Skautafélag Akureyrar Toppdeildarmeistarar kvenna 2026

by | 9 mar, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

SA Fékk afhentan deildarmeistaratitil Toppdeildar kvenna við hátíðlega athöfn á ísnum eftir leik þegar liðið lagði SR 3–0 í Skautahöllinni á Akureyri á sunnudagskvöld.

Heimamenn voru sterkari í leiknum og náðu forystunni snemma, bættu svo við mörkum í öðrum og þriðja leikhluta og sigldu öruggum sigri í höfn. Markvörður SA, Shawlee Gaudreault, átti frábæran leik og hélt marki sínu hreinu.


LEIKURINN:

SA tók forystuna um miðjan fyrsta leikhluta þegar Ragnheiður Ragnarsdóttir kom liðinu yfir eftir stoðsendingu frá Silvíu Björgvinsdóttur.

Í öðrum leikhluta tvöfaldaði SA forskot sitt þegar Aðalheiður Ragnarsdóttir skoraði annað mark liðsins eftir sendingar frá Sveindísi Sveinsdóttur og Guðrúnu Valentine.

Heimamenn innsigluðu síðan sigurinn snemma í þriðja leikhluta þegar Silvía Björgvinsdóttir skoraði þriðja og síðasta mark SA eftir stoðsendingar frá Amöndu Bjarnadóttur og Bergþóru Bergþórsdóttur.

SR reyndi að svara en Shawlee Gaudreault í marki SA varði öll 17 skotin sem hún fékk á sig.

Eftir leikinn fengu leikmenn SA afhentan deildarmeistaratitil Toppdeildar kvenna við mikinn fögnuð áhorfenda í Skautahöllinni á Akureyri.

(Ólafur Þorgrímsson)

TÖLFRÆÐI

SA:

  • Silvía Björgvinsdóttir – 1/1
  • Ragnheiður Ragnarsdóttir – 1/0

  • Aðalheiður Ragnarsdóttir – 1/0

  • Sveindís Sveinsdóttir – 0/1

  • Guðrún Valentine – 0/1

  • Amanda Bjarnadóttir – 0/1

  • Bergþóra Bergþórsdóttir – 0/1

  • Aníta Benjamínsdóttir – 0/1

Shawlee Gaudreault 17/17

SR:

Julianna Thomson 28/31

Lok lok og læs (Ólafur Þorgrímsson)

Einn leikur er eftir í Toppdeild kvenna og er hann næst komandi föstudag klukkan 19:45 í Egilshöll þegar við fáum síðasta Reykjarvíkur slag vetrarins

Share This