SR eru Íslandsmeistarar í íshokkí karla eftir 3–2 sigur á SA í þriðja leik úrslitaeinvígisins í Skautahöllinni í Laugardal á laugardaginn. Með sigrinum kláraði SR einvígið 3–0 og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.
SR hafði áður unnið fyrstu tvo leikina og þurfti því aðeins einn sigur til að landa titlinum. Þrátt fyrir mikla baráttu frá norðanmönnum héldu heimamenn haus og kláruðu einvígið fyrir framan fjölmenni í Laugardalnum.
LEIKURINN
SR byrjaði leikinn af krafti og náði tveggja marka forystu í fyrsta leikhluta.
Fyrst kom Alex Sveinsson SR yfir þegar hann skoraði eftir sendingar frá Jonathan Otouma og Hákoni Magnússyni. Skömmu síðar tvöfaldaði Axel Orongan forystuna eftir stoðsendingar frá Heiðari Kristveigarssyni og aftur Hákoni Magnússyni.
SR hélt áfram að stjórna leiknum og bætti við þriðja markinu í öðrum leikhluta þegar Þorgils Eggertsson skoraði í power play eftir sendingar frá Eduard Kascak og Hákoni Magnússyni.
SA náði þó að halda lífi í leiknum. Jóhann Leifsson minnkaði muninn í 3–1 áður en Heiðar Jóhannsson skoraði í þriðja leikhluta og minnkaði stöðuna í 3–2.
Norðanmenn reyndu að sækja jöfnunarmark undir lokin, tóku markmanninn útaf og þar sem Gabriel Gunnlaugsson var með refsingu undir lokinn spiluðu þeir sex á móti fjórum en SR hélt út og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.

Þeir enduðu flestir í hanskanum hjá Jóhanni (Bjarni Baldursson)
Jóhann Ragnarsson einn besti leikmaður einvígisins
Markvörður SR, Jóhann Björgvin Ragnarsson, átti frábæran leik í markinu og varði 22 skot í loka leiknum af 24. Hann var einnig einn af lykilmönnum einvígisins í heild. Samkvæmt tölfræði úr úrslitakeppninni var hann með 93,98% markvörslu og 1,87 mörk á sig að meðaltali, sem var besta markvarslan í úrslitunum.
Jóhann byrjaði ekki úrslitin þar sem meiðsli höfðu verið að hrjá hann í vetur og Ævar Björnsson hinn markmaður SR hafði staðið vaktina stærsta part tímabilsins en þetta hafði hann að segja aðspurður hvernig væri að koma inn í úrslitin hafandi ekki spilað eins mikið í deildinni:
“Nei það er rétt ég meiddist á ökkla um miðjan nóvember og spilaði ekkert þangað til í febrúar þannig þetta var aðeins öðruvísi tímabil fyrir mig en ég náði 2 leikjum fyrir úrslitakeppnina til að koma mér aftur í leikform. Það hjálpaði líka að Ævar var búinn að vera frábær í markinu sem setti pressu á mig að æfa vel og koma mér aftur í stand og þegar ég fékk sénsinn þá fannst mér ég klár í slaginn líkamlega og andlega.”
En hvernig var tilfinningin eftir leik?
“Það er alltaf geggjuð tilfinning að vinna, það var extra sætt þetta árið að vinna í 3 leikjum og fá að lyfta dollunni á okkar heimavelli með okkar áhorfendum.”
En hefur hann eitthvað heyrt frá Martin landsliðsþjálfara eftir frammistöðu sína í þessari úrslitakeppni?
“Nei ég hef ekkert heyrt frá honum, en hef verið í samskiptum við Rúnar aðstoðarþjálfara í gegnum tímabilið og það er því miður ólíklegt að ég geti gefið kost á mér fyrir HM í Búlgaríu ef að þeir myndu vilja fá mig með.”

Liðleiki Róberts dugði ekki til þarna (Bjarni Baldursson)
Hákon Magnússon stigahæstur í úrslitunum
Hákon Magnússon var stigahæsti leikmaður úrslitaeinvígisins með 7 stig (2 mörk og 5 stoðsendingar) í þremur leikjum.
Næstur kom liðsfélagi hans Axel Orongan með 6 stig, en Níels Hafsteinsson var einnig á meðal stigahæstu manna með 5 stig.
Hjá SA voru Jóhann Leifsson og Ormur Jónsson stigahæstir með 4 stig hvor í einvíginu.
SR með yfirhöndina í einvíginu
SA menn byrjuðu einvígið töluvert betur en SR, þeir leiddu 5-1 eftir 42 mínútna leik í fyrsta leik liðanna en eftir það hafði SR tögl og hagldir í einvíginu. Liðið vann fyrsta leikinn með rosalegum endurkomu sigri sem virtist hafa slegið norðanmenn út af laginu þar sem SR stýrðu leik tvö alveg frá byrjun og kom því með mikið sjálfstraust inn í þriðja leikinn.
Varnarleikur liðs SR var virkilega góður og þá sérstaklega varin skot, bæði frá útileikmönnum liðsins sem hoppuðu fyrir hvert skotið á fætur öðru en einnig hjá Jóhanni Björgvin í markinu sem varði nánast allt hitt sem fór í gegn.

Jóhann Már var stigahæstur í liði SA í einvíginu ásamt Orm Jónssyni (Bjarni Baldursson)
TÖLFRÆÐI – 3. leikur
SR:
- Hákon Magnússon – 0/3
- Alex Máni Sveinsson – 1/0
- Axel Orongan – 1/0
- Þorgils Eggertsson – 1/0
- Jonathan Otouma – 0/1
- Heiðar Kristveigarson – 0/1
- Eduard Kascak – 0/1
Jóhann Björgvin Ragnarsson 22/24 (91,7%)
SA:
- Jóhann Leifsson – 1/0
- Heiðar Jóhannsson – 1/0
- Ormur Jónsson – 0/1
- Harrison Nagel – 0/1
- Atli Sveinsson – 0/1
- Elvar Skúlason – 0/1
Robert Steingrímsson 26/29 (89,7%)
Lokastaðan í einvíginu
SR – SA 3–0
SR eru þar með Íslandsmeistarar Toppdeildar karla 2026

Þá var kátt í höllinni (Bjarni Baldursson)
