SA tók 1–0 forystu í úrslitaeinvígi Toppdeildar kvenna með 1–0 sigri á SR í fyrsta leik liðanna í Skautahöllinni á Akureyri á laugardaginn.
Eini mark leiksins kom í öðrum leikhluta í leik þar sem varnarleikur og markvarsla voru í aðalhlutverki.
LEIKURINN
Leikurinn var jafn og þéttur frá fyrstu mínútu þar sem bæði lið spiluðu agaðan varnarleik og gáfu lítið eftir.
SR fékk fyrsta alvöru power play leiksins undir lok fyrsta leikhluta en náði ekki að nýta sér það, þar sem vörn SA stóð vaktina vel og Shawlee Gaudreault var örugg í marki heimaliðsins.

Magdalena skoraði eina mark leiksins (Ólafur Þorgrímsson)
Eina mark leiksins kom svo á 26. mínútu þegar Magdalena Sulova kom SA yfir eftir stoðsendingar frá Amöndu Bjarnadóttur og Sólrúnu Arnardóttur.
SR reyndi að sækja jöfnunarmarkið það sem eftir lifði leiks og komust nálægt því nokkrum sinnum, tóku markvörðinn útaf í lokin, en án árangurs.
Markvörður SA, Shawlee Gaudreault, var frábær og hélt hreinu með 21 vörðu skoti, á meðan Julianna Thomson stóð einnig vel í marki SR með 16 vörslur.
Neðst í fréttinni má finna gang leiksins
TÖLFRÆÐI
SA:
- Magdalena Sulova – 1/0
- Amanda Bjarnadóttir – 0/1
- Sólrún Arnardóttir – 0/1
Shawlee Gaudreault 21/21 (100%)
SR:
Julianna Thomson 16/17 (94,1%)

Shawlee hélt markinu hreinu (Ólafur Þorgrímsson)
Fyrirliðinn: „pökkurinn vildi ekki inn“
Fyrirliði SA, Silvía Björgvinsdóttir, var ánægð með sigurinn en sagði að liðið ætti inni meira sóknarlega. Aðspurð að því hvernig tilfinningin væri að vinna fyrsta leik sagði hún:
„Geggjuð, það er alltaf gaman að vinna og við erum spenntar fyrir næsta leik.“
Hún sagði leikinn heilt yfir góðan en að færanýting hefði mátt vera betri:
„Leikurinn var góður, við vorum að pressa vel og vörnin var flott og við vorum að ná góðum sprettum en pökkurinn vildi ekki inn svo vonandi gengur það betur í næsta leik.“
Aðspurð hvað fólk megi búast við í næsta leik var hún skýr:
„Fólk má búast við alvöru skemmtun.“

Silvía fyrirliði SA (Ólafur Þorgrímsson)
Framhaldið
SA leiðir einvígið nú 1–0.
Næsti leikur fer fram á þriðjudag klukkan 19:45 í Laugardalnum þar sem SR fær tækifæri til að jafna einvígið.

(Ólafur Þorgrímsson)
Leikur #1
laugardaginn 21. mars 2026 kl.16:45

Skautafélag Akureyrar
1
0

Skautafélag Reykjavíkur
1. Lota

#41 shawlee gaudreault

#80 julianna thomson

#10 guðrún ásta valentine
2. Lota

#68 magdalena sulova, Stoð: #19 amanda bjarnadottir, #23 solrun assa arnardottir
3. Lota

#8 arndis sigurdardottir

#12 aðalheiður anna ragnarsdottir

#80 julianna thomson

#41 shawlee gaudreault
