Karlalandslið Íslands náði öðrum sigri sínum á heimsmeistaramótinu í Sofia þegar liðið lagði Nýja Sjáland örugglega 6–2.
Ísland var sterkari aðilinn lengst af og byggði upp forskot jafnt og þétt eftir því sem leið á leikinn.
Nú tekur við frídagur hjá liðinu áður en Ísland mætir Kirgistan á fimmtudaginn klukkan 13:30 að íslenskum tíma.
Leikurinn:
Leikurinn byrjaði með marki frá Nýja Sjálandi en Ísland svaraði fljótt. Kári Arnarsson jafnaði leikinn í powerplay og Gunnlaugur Þorsteinsson kom Íslandi yfir áður en fyrsta leikhluta lauk.
Í öðrum leikhluta jók Ísland forskotið enn frekar. Gunnlaugur bætti við öðru marki sínu og Hákon Marteinn Magnússon skoraði einnig áður en Unnar Hafberg Rúnarsson kom Íslandi í 5–1 með marki í powerplay.
Í þriðja leikhluta fullkomnaði Gunnlaugur þrennuna sína áður en Nýja Sjáland náði að minnka muninn undir lokin. Ísland sigldi þó sigrinum örugglega heim, 6–2.

MMA?
Maður leiksins – Gunnlaugur Þorsteinsson
Gunnlaugur var valinn maður leiksins eftir frábæra frammistöðu þar sem hann skoraði þrennu.
Tölfræði:
Ísland:
- Gunnlaugur Þorsteinsson – 3/0
- Hákon Magnússon – 1/1
- Jóhann Leifsson – 0/2
- Gunnar Arason – 0/2
- Níels Hafsteinsson – 0/2
- Unnar Rúnarsson – 1/0
- Kári Arnarsson – 1/0
- Þorgils Eggertsson – 0/1
- Ólafur Björgvinsson – 0/1
Helgi Ívarsson 24/25 (96%)
Róbert Steingrímsson 2/3 (66,7%)

Gunnlaugur Þorsteinsson maður leiksins
