Karlalandslið Íslands tapaði 3–1 gegn heimamönnum í Búlgaríu í fjórða leik sínum á heimsmeistaramótinu í Sofia.
Íslenska liðið sótti meira og átti fleiri skot á markið, en Búlgarar nýttu sín færi betur og lönduðu mikilvægum sigri.
Þrátt fyrir tapið er staðan einföld fyrir lokaleik mótsins. Ísland mætir Ísrael í dag klukkan 10:00 að íslenskum tíma og sigurvegari þess leiks tryggir sér gullið og mögulegt sæti í hærri deild.
Leikurinn:
Fyrsti leikhluti var markalaus þrátt fyrir að bæði lið fengju sín færi.
Í öðrum leikhluta komust Búlgarar yfir þegar þeir nýttu sér pressu á íslenska svæðinu og leiddu 1–0 eftir tvo leikhluta.

Markmaður Bulgaríu átti drauma leik með 97,1% markvörslu
Í upphafi þriðja leikhluta bættu heimamenn við öðru marki í powerplay og staðan orðin erfið fyrir Ísland. Alex Sveinsson minnkaði muninn í 2–1 þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir og Ísland tók markmanninn út í lokin í leit að jöfnunarmarki.
Það skilaði þó ekki árangri og Búlgarar skoruðu í autt markið undir lokin og tryggðu sér 3–1 sigur.
Maður leiksins – Heiðar Gauti Jóhannsson
Heiðar Gauti var valinn maður leiksins hjá Íslandi eftir öfluga frammistöðu á báðum endum vallarins.

Heiðar Jóhannsson maður leiksins
Tölfræði:
Ísland:
- Alex Sveinsson – 1/0
- Viktor Mojzyszek – 0/1
Helgi Ívarsson 22/24 (91,7%)
Staða í riðli:
- Ísrael – 10 stig
- Ísland – 9 stig
- Nýja Sjáland – 7 stig
- Kirgistan – 4 stig
- Búlgaría – 3 stig
- Kínverska Taipei – 3 stig
Allt undir í lokaleiknum
Ísland mætir Ísrael í dag klukkan 10:00 að íslenskum tíma í hreinum úrslitaleik um efsta sætið. Sigurvegari leiksins hampar gullinu og mögulega sæti í deild fyrir ofan að ári.

Alltaf harka
