Karlalandslið Íslands hafnaði í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu í Sofia í Búlgaríu eftir 5–2 tap gegn Ísrael í lokaleik mótsins.
Leikurinn var hreinn úrslitaleikur um gullverðlaunin þar sem sigurvegari leiksins tryggði sér efsta sætið og sæti í hærri deild. Ísrael hafði betur að þessu sinni og tryggði sér gullið.
Ísland endar því mótið með þrjá sigra og tvö töp, samtals níu stig, og hafnar í þriðja sæti.
Leikurinn:
Ísrael byrjaði betur og skoraði tvö mörk snemma í fyrsta leikhluta. Unnar Hafberg Rúnarsson minnkaði muninn fyrir Ísland í powerplay áður en hlé var gert og staðan 2–1.
Í öðrum leikhluta bætti Ísrael við einu marki og staðan orðin 3–1 fyrir lokaleikhlutann.
Í þriðja leikhluta jók Ísrael muninn enn frekar í 4–1 áður en Viktor Mojzyszek minnkaði muninn fyrir Ísland. Ísland reyndi allt til loka og tók markmanninn út af í leit að marki, en Ísrael innsiglaði sigurinn með marki í autt netið undir lokin.
Maður leiksins – Viktor Mojzyszek
Viktor var valinn maður leiksins hjá Íslandi eftir öfluga frammistöðu og mark í lokaleiknum.

Viktor maður leiksins
Tölfræði:
Ísland:
- Unnar Hafberg Rúnarsson – 1/0
- Viktor Mojzyszek – 1/0
- Ólafur Björgvinsson – 0/1
- Jóhann Leifsson – 0/1
- Bjarmi Kristjánsson – 0/1
- Heiðar Gauti Jóhannsson – 0/1
Helgi Ívarsson 23/27 (85,2%)
Lokastaða mótsins:
- Ísrael – 13 stig
- Nýja Sjáland – 10 stig
- Ísland – 9 stig
- Búlgaría – 6 stig
- Kirgistan – 4 stig
- Kínverska Taipei – 3 stig
Samantekt mótsins
Ísland vann þrjá fyrstu leiki sína á mótinu og var í baráttu um gullið allt fram á lokadag. Tap í síðustu tveimur leikjunum gegn Búlgaríu og Ísrael gerði það að verkum að liðið endaði í þriðja sæti að þessu sinni.
Þrátt fyrir það sýndi íslenska liðið á köflum sterkan leik og margt jákvætt má taka með sér úr mótinu.

Helgi stóð vaktina allt mótið
