Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí hóf leik á heimsmeistaramótinu í Bled í Slóveníu með eftirminnilegum sigri í dag þegar liðið lagði heimakonur frá Slóveníu, 4-3, eftir stórkostlegan þriðja leikhluta.
LEIKURINN:
Fyrsti leikhluti var markalaus þar sem bæði lið fengu sín færi en markverðir liðanna héldu hreinu.
Slóvenar náðu svo undirtökunum í öðrum leikhluta og skoruðu þrjú mörk á stuttum kafla. Heimaliðið komst í 3-0 áður en Ísland minnkaði muninn í powerplay þegar Teresa Snorradóttir skoraði eftir stoðsendingu frá Friðriku Magnúsdóttur. Staðan eftir tvo leikhluta var því 3-1 fyrir Slóveníu.

Andrea er mikilvægur hlekkur í liðinu hjá stelpunum
Íslenska liðið sýndi hins vegar mikinn karakter í lokaleikhlutanum. Silvía Rán Björgvinsdóttir minnkaði muninn snemma í þriðja leikhluta og skoraði síðan aftur í powerplay þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum og jafnaði í 3-3.
Sigurmarkið kom svo aðeins 49 sekúndum síðar þegar Sunna Björgvinsdóttir skoraði og tryggði Íslandi glæsilegan 4-3 sigur í opnunarleik mótsins.
MAÐUR LEIKSINS:
Valið féll á Silvíu Rán Björgvinsdóttur, sem skoraði tvö afar mikilvæg mörk í endurkomu Íslands í þriðja leikhluta.

Silvía maður leiksins
TÖLFRÆÐI:
Ísland:
- Silvía Rán Björgvinsdóttir – 2/0
- Teresa Regína Snorradóttir – 1/0
- Sunna Björgvinsdóttir – 1/0
- Friðrika Ragna Magnúsdóttir – 0/2
- Teresa Regína Snorradóttir – 0/1
Andrea Diljá Bachmann 29/32 (90,6%)
NÆSTI LEIKUR:
Næsti leikur hjá stelpunum er á morgun, miðvikudag, gegn Póllandi klukkan 14:00 á íslenskum tíma

Herborg með fullan fókus
