Pólland hafði betur gegn Íslandi á HM kvenna

by | 16 apr, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí lék sinn annan leik á heimsmeistaramótinu í Bled í Slóveníu í dag þegar liðið mætti Póllandi. Pólsku stúlkurnar reyndust sterkari og fögnuðu 4-1 sigri.

LEIKURINN:

Ísland fékk draumabyrjun þegar aðeins tvær mínútur voru liðnar af leiknum. Gunnborg Jóhannsdóttir kom Íslandi yfir eftir stoðsendingar frá Sunnu Björgvinsdóttur og Friðriku Rögnu Magnúsdóttur.

Pólland jafnaði leikinn í fyrsta leikhluta í powerplay og staðan var 1-1 eftir fyrstu tuttugu mínúturnar.

Elísa Sigfinnsdóttir

Annar leikhluti var markalaus þrátt fyrir talsverða pressu frá pólska liðinu og stóð íslenska vörnin þar af sér storminn, með Andreu Diljá Bachmann sterka í markinu.

Í þriðja leikhluta náði Pólland svo yfirhöndinni með tveimur mörkum. Þegar Ísland tók markvörðinn út undir lok leiks bættu Pólverjar svo við einu marki enn og innsigluðu 4-1 sigur.

MAÐUR LEIKSINS:

Magdalena Sulova var maður leiksins en einnig átti Andrea Bachmann, markvörð Íslands, frábæran leik og varði 45 skot.

Magdalena Sulova maður leiksins

TÖLFRÆÐI:

Ísland:

  • Gunnborg Jóhannsdóttir – 1/0
  • Sunna Björgvinsdóttir – 0/1
  • Friðrika Magnúsdóttir – 0/1

Andrea Bachmann 45/48 (93,8%)

STAÐA RIÐILS:

  1. Pólland – 6 stig
  2. Ísland – 3 stig
  3. Slóvenía – 3 stig
  4. Kínverska Taipei – 2 stig
  5. Ástralía – 1 stig

NÆSTI LEIKUR:

Ísland mætir Ástralíu á morgun klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Andrea stóð vaktina vel í markinu

Share This