Ástralía hafði betur gegn Íslandi á HM kvenna

by | 18 apr, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

Íslenska kvennalandsliðið lék í dag sinn þriðja leik á heimsmeistaramótinu í Bled í Slóveníu þegar liðið mætti Ástralíu. Ástralska liðið reyndist sterkara að þessu sinni og vann 4-1 sigur.

LEIKURINN:

Ástralía byrjaði leikinn af krafti og komst í 2-0 forystu í fyrsta leikhluta með tveimur mörkum.

Íslenska liðið svaraði snemma í öðrum leikhluta þegar Friðrika Magnúsdóttir minnkaði muninn í 2-1 í powerplay eftir stoðsendingar frá Sunnu Björgvinsdóttur og Katrínu Björnsdóttur.

Friðrika Magnúsdóttir eftir markið sitt

Vonir kviknuðu um áframhaldandi endurkomu, en Ástralía náði aftur tveggja marka forskoti síðar í öðrum leikhluta með marki í yfirtölu.

Í þriðja leikhluta bættu Ástralir svo við fjórða markinu og tryggðu sér sigurinn.

TÖLFRÆÐI:

Ísland:

  • Friðrika Magnúsdóttir – 1/0
  • Sunna Björgvinsdóttir – 0/1
  • Katrín Björnsdóttir – 0/1

Andrea Diljá Bachmann 31/35 (88,6%)

NÆSTI LEIKUR:

Síðasti leikur Íslands á mótinu fer fram í dag gegn Kínverska Taipei klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Sólrún Arnardóttir

Share This