Fyrsti leikur U20 landsliðs í deildarkeppninni í kvöld

by | 11 sep, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Landslið Íslands skipað leikmönnum yngri en 20 ára mun taka þátt í Topp deild karla á þessu tímabili. Þetta er tilraun sem ÍHÍ og aðildarfélög sambandsins eru að gera saman. Markmiðið er að leikmenn U20 liðsins fái betri undirbúning og æfingaleiki fyrir árlega þátttöku sína í Heimsmeistarakeppni Alþjóða íshokkísambandsins. Þessir leikir verða gríðarlega mikilvægir fyrir liðið þegar á reynir á HM. Liðið leikur í sínum styrkleikaflokki í borginni Istanbul í Tyrklandi í janúar 2027.

Gauti Þormóðsson U20 landsliðsþjálfari

 

„Það er búin að vera einstök stemning í kringum þetta verkefni og ánægjulegt hvað stjórnarfólk, leikmenn og þjálfarar félaganna hafa verið hjálplegir við að láta þessalitlu hugmynd verða að veruleika“ segir Gauti Þormóðsson annar þjálfara U20 landsliðsins. „Þetta er risa stórt skref í áttina að því að koma liðinu upp um styrkleikaflokk innan þriggja ára. Auk þess sem ég er viss um að þetta skilar félögunum sterkari og betri leikmönnum á eftir“ segir Gauti.

Fysti leikur U20 liðsins verður við Íslandsmeistara Skautafélags Reykjavíkur í skautahöllinni í Laugardalnum og hefst leikurinn klukkan 19:45 við hvetjum alla íshokkíáhugamenn að mæta.

Share This