Jóhann Már Leifsson, fyrirliði SA, var nokkuð ánægður með frammistöðuna gegn SR í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöldi. Eftir dramatískan og spennandi leik vann SR 3:2 með gullmarki í framlengingu sem kom úr power play.
„Þegar leikir fara í framlengingu þá getur sigurinn dottið hvoru megin sem er. Þegar komið var í framlenginguna komust þeir í yfirtölu og það er mjög erfitt að verjast því. Vera þrír á móti fjórum. Þá skapast mikið svæði,“ sagði Jóhann þegar ishokki.is spjallaði við hann í Laugardalnum.
Hann sagði SA hafa bætt sig mikið á milli leikja en liðið tapaði á dögunum 4:1 fyrir Fjölni.
„Þetta var skemmtilegur leikur og bæði lið börðust á fullu. Við vorum alveg skelfilegir í síðasta leik á móti Fjölni í Egilshöllinni. Það var eins og það kæmi allt annað lið í leikinn í kvöld og við börðumst miklu betur. Við vorum miklu betur tilbúnir í þennan leik en í leikinn gegn Fjölni en Fjölnismenn yfirspiluðu okkur í 60 mínútur í þeim leik. Við getum tekið helling af jákvæðum punktum út úr þessum leik en á sama tíma er einnig hægt að bæta helling í okkar leik. Við þurfum að taka það jákvæða með okkur inn í næsta leik en reyna um leið að laga litlu hlutina.“
Sigurhefðin er rík á Akureyri og þar munu menn ekki fara á taugum þótt liðið fari rólega af stað í september og október.
„Það er nóg eftir af mótinu og það er nægur tími til að bæta sig. Það á einnig við um hin liðin og ég held að deildin verði jöfn í vetur sem er geðveikt fyrir íþróttina.“
Jóhann bendir á að SA hafi fengið nýjan þjálfara þegar Emil Alengård tók við í sumar og nýjum þjálfara fylgi nýjar áherslur.
„Emil er að breyta leikstílnum og fínpússa ýmislegt. Þegar nýr þjálfari mætir á svæðið þá vilja allir sýna sig og sanna. Á undirbúningstímabilinu var hann með æfingar sem við höfum ekki vanist hvort sem það var á ísnum eða fyrir utan ísinn. Emil er að læra inn á okkur og við erum að læra inn á hann. Hokkíið er alltaf að þróast og Emil er að koma með nýjar hugmyndir inn hjá okkur sem er bara jákvætt,“ sagði Jóhann Már Leifsson.
Ljósmynd/Hafsteinn
