Varnarmúrar reistir í Laugardal

by | 10 okt, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

Reykvíkingar og Akureyringar byggðu trausta og haldgóða varnarmúra í Laugardalnum í kvöld þegar Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar tókust á í Topp-deild kvenna.

Múrarnir héldu allan venjulegan leiktíma og þá tókst leikmönnum sjaldnast að brjótast í gegnum varnarmúrana og þegar það tókst þá sáu markverðir liðanna við sóknarmönnunum.

Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja. Ekki tókst að knýja fram úrslit í framlengingunni og þá þurfti vítakeppni til.

Þar hafði SR betur og nældi því í 2 stig út úr leiknum en SA fær 1 stig.

Í vítakeppninni fóru markverðir liðanna á kostum því þær nánast neituðu að hleypa pökknum í netið, rétt eins og í leiknum sjálfum.

Bríet María Friðjónsdóttir skoraði sigurmarkið fyrir SR og tryggði aukastigið með eina markinu í vítakeppninni.

Julianna Thomson varði fjögur víti frá SA og eitt þeirra hitti ekki mrakið. Shawlee Gaudreault varði fjögur víti frá SR.

Liðin mættust einnig í september og þá hafði SA betur 2:0. Ef mið er tekið af þessum leikjum í upphafi tímabilsins þá gæti verið áhugaverð barátta framundan á milli SR og SA um Íslandsmeistartitilinn.

Á myndinni má sjá markvörð SR, Juliönnu Thomson, á vaktinni í kvöld. Varla er á neina hallað þegar því er kastað fram að hún hafi verið maður leiksins.

Ljósmynd/Hafsteinn

Leikur #5

laugardaginn 10. október 2026 kl.17:45


Skautafélag Reykjavíkur

1

gegn

0


Skautafélag Akureyrar

1. Lota

Tími
Lið
Atvik
00:00
Markmaður á ís

#41 shawlee gaudreault

00:00
Markmaður á ís

#80 julianna thomson

2. Lota

Tími
Lið
Atvik
33:17
🔴 Brot (2 mín, Krækja)

#33 berglind huld ríkarðsdóttir

3. Lota

Tími
Lið
Atvik

Framlenging

Tími
Lið
Atvik
62:41
🔴 Brot (2 mín, Slá með kylfu)

#29 gunnborg petra jóhannsdóttir

62:41
Leikhlé

-

65:00
Markmaður af ís

#80 julianna thomson

65:00
Markmaður af ís

#41 shawlee gaudreault

Vítakeppni

Tími
Lið
Atvik
65:00
Vítakeppni (1) 0 - 0

#16 ragnheidur ragnarsdottir

65:00
Vítakeppni (2) 1 - 0

#19 bríet maría friðjónsdóttir

65:00
Vítakeppni (3) 1 - 0

#10 guðrún ásta valentine

65:00
Vítakeppni (4) 1 - 0

#16 ragnhildur kjartansdottir

65:00
Vítakeppni (5) 1 - 0

#68 magdalena sulova

65:00
Vítakeppni (6) 1 - 0

#29 gunnborg petra jóhannsdóttir

65:00
Vítakeppni (7) 1 - 0

#33 berglind huld ríkarðsdóttir

65:00
Vítakeppni (8) 1 - 0

#18 berglind leifsdóttir

65:00
Vítakeppni (9) 1 - 0

#88 hilma bergsdóttir

65:00
Sigurmark

#19 bríet maría friðjónsdóttir

Share This