Ekkert lát er á markaskorinu í Topp-deild karla og mörkunum rigndi bókstaflega í sigri SA Víkinga á Fjölni í Skautahöllinni í Laugardal en þar er fyrsta ofurhelgi vetrarins leikin um helgina.
Skautafélag Akureyrar hafði betur 8:6 eftir afar fjörugan leik eins og tölurnar bera með sér.
Það voru þó Fjölnismenn sem byrjuðu betur, og mun betur, því þeir komust í 2:0 eftir rúmlega 12 mínútna leik. SA jafnaði 2:2 áður en fyrsta leikhluta lauk og gerði það á 20 sekúndna kafla. Fyrra markið kom eftir power play og var það eina mark leiksins sem kom eftir power play.
Fjölnir náði aftur forystunni 3:2 snemma í öðrum leikhluta en þá snérist taflið gersamlega Akureyringum í hag sem áttu magnaðan annan leikhluta og voru komnir með 7:4 forskot fyrir síðasta leikhlutann.

SA bætti við áttunda marki sínu snemma í síðasta leikhlutanum áður en Jere Koikkalainen minnkaði muninn fyrir Fjölni með tveimur mörkum en hann skoraði þrennu í kvöld. Daniil Fursa skoraði einnig þrennu fyrir SA og Hafþór Sigrúnarson átti fjórar stoðsendingar.
Var þetta þriðji sigur Akureyringa í venjulegum leiktíma á tímabilinu í sjö leikjum en þeir hafa reyndar einungis tapað einum eftir venjulegan leiktíma. Töpin eftir framlengingu eru tvö og einn sigur eftir framlengingu.
Fjölnir hefur unnið einn leik og tapað þremur, þar af einum eftir framlengingu.
Mörk Fjölnis: Jere Koikkalainen 3, Hektor Hrólfsson, Hilmar Sverrisson, Kristján Jóhannesson.
Stoðsendingar: Jere Koikkalainen, Falur Guðnason, Róbert Pálsson, Hektor Hrólfsson, Andri Helgason.
Mörk SA: Daniil Fursa 3, Baltasar Hjálmarsson 2, Unnar Rúnarsson 2, Bjartur Westin, Bjarki Jóhannsson,
Stoðsendingar: Hafþór Sigrúnarson 4, Daniil Fursa 2, Bjartur Westin, Aron Ingason, Gunar Arason, Unnar Rúnarsson, Baltasar Hjálmarsson.
Myndatexti: Bjartur Westin skoraði og átti stoðsendingu fyrir SA.
Myndatexti: Hilmar Sverrisson fagnar marki sínu fyrir Björninn.
Ljósmyndir: Hafsteinn Snær.
