Skautafélag Akureyrar sýndi styrk sinn í kvöld þegar liðið vann Skautafélag Reykjavíkur 4:0 í Topp-deild kvenna í Skautahöllinni í Laugardal.
SA hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum á tímabilinu og hefur aðeins fengið á sig 2 mörk sem er býsna magnað.
Þessi sömu lið mættust einnig í Laugardalnum fyrr í mánuðinum og þá vann SR 1:0 eftir framlengdan leik. SA vann hins vegar 2:0 þegar liðin mættust í fyrsta leik tímabilsins í september.
SA var 1:0 yfir eftir fyrsta leikhluta með marki Silvíu Björgvinsdóttur. Eftir meira en hálftíma leik kom annað markið frá Hilmu Bergsdóttur og Akureyringar gengu á lagið og náðu þriggja marka forskoti fyrir síðasta leikhlutann með marki Eyrúnar Garðarsdóttur.
Sólrún Arnardóttir innsiglaði 4:0 sigur SA með fjórða markinu á 45. mínútu.
Mörk SA: Silvía Björgvinsdóttir, Hilma Bergsdóttir, Eyrún Garðarsdóttir, Sólrún Arnardóttir.
Stoðsendingar: Eyrún Garðarsdóttir, Magdalena Sulova, Aþena Elínrós Guðlaugsdóttir, Herberg Geirsdóttir.
Myndatexti: Hin kanadíska Shawlee Gaudreault hélt marki SA hreinu í kvöld.
