Fjölnismenn minntu hressilega á sig

by | 26 okt, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Fjölnismenn minntu hressilega á sig í Topp-deild karla í kvöld þegar þeir snéru erfiðri stöðu í sigur gegn Íslandsmeisturunum í Skautafélagi Reykjavíkur í Skautahölinni í Laugardal. Fjölnir sigraði 5:4 eftir framlengdan leik en SR komst í 4:1 í leiknum.

Að lokinni fyrstu ofurhelginni í deildinni á þessu tímabili fær SA 4 stig út úr helginni, SR 3 stig og Fjölnir 2 stig en tveir af leikjunum þremur voru framlengdir. Er það enn ein vísbendingin um að hversu jöfn og skemmtileg deildin gæti orðið í vetur ef fram heldur sem horfir.

Að loknum fyrsta leikhluta benti fátt til annars en að SR næði í 3 stig í kvöld en þar var staðan orðin 4:1. SR skoraði því ekki mark frá því á 17. mínútu sem er athyglisvert en hafði sem sagt skorað 4 á um fjögurra mínútna kafla á fyrstu 17 mínútum leiksins. Fjölnir skoraði þó fyrsta markið í kvöld og það gerði Hilmar Sverrisson. Gunnlaugur Þorsteinsson, Heiðar Örn Kristveigarson, Kári Arnarsson og Níels Hafsteinsson svöruðu fyrir SR.

Níels Hafsteinsson SR og Gabríel Egilsson Fjölni takast á í leiknum í kvöld.

Í öðrum leikhluta tókst Fjölnismönnum að vinna sig aftur inn í leikinn með mörkum frá Sturlu Snorrasyni og Hilmari. Staðan var 4:3 frá því um miðjan annan leikhluta og þar til á næstsíðustu mínútu leiksins. Þá jafnaði Finninn Jere Koikkalainen eftir power play og því þurfti að framlengja til að knýja fram úrslit og spila um aukastigið.

Koikkanainen sýndi þá hversu útsjónarsamur hann er og skoraði gullmarkið.  Hann skoraði því bæði jöfnunar-og sigurmarkið í kvöld. Finninn virðist eiga nóg eftir á tanknum þegar langt er liðið á leikina því í gærkvöldi skoraði hann einnig tvö mörk á lokakaflanum gegn SA þótt það réði reyndar ekki úrslitum í þeim leik sem SA vann.

Mörk SR: Gunnlaugur Þorsteinsson, Heiðar Örn Kristveigarson, Kári Arnarsson og Níels Hafsteinsson

Stoðsendingar: Hákon Magnússon, Ævar Arngrímsson, Pétur Maack, Haukur Steinsen, Kári Arnarsson, Alex Máni Sveinsson.

Mörk Fjölnis: Hilmar Sverrisson 2, Jere Koikkalainen 2, Sturla Snorrason.

Stoðsendingar: Hilmar Sverrisson, Krisjanis Abolins, Viktor Svavarsson, Hektor Hrólfsson, Andri Helgason.

Myndatexti: Fjölnismenn fögnuðu sigri í kvöld og tveimur stigum.

Ljósmyndir: Hafsteinn Snær

Leikur #1

sunnudaginn 25. október 2026 kl.19:45


Skautafélag Reykjavíkur

4

gegn

5


Fjölnir

1. Lota

Tími
Lið
Atvik
00:00
Markmaður á ís

#31 jóhann björgvin ragnarsson

00:00
Markmaður á ís

#50 tuomas heikkonen

12:26
🔔 MARK (0 - 1, EQ)

#25 hilmar sverrisson, Án stoðsendinga

13:41
🔔 MARK (1 - 1, EQ)

#9 gunnlaugur þorsteinsson, Stoð: #23 hakon magnusson

14:03
🔔 MARK (2 - 1, EQ)

#10 heiðar örn kristveigarson, Stoð: #21 pétur maack, #8 ævar arngrímsson

15:30
🔔 MARK (3 - 1, EQ)

#19 kári arnarsson, Stoð: #95 haukur steinsen

15:30
Leikhlé

-

16:13
🔴 Brot (2 mín, Grófur leikur)

#23 hakon magnusson

16:13
🔴 Brot (2 mín, Halda)

#14 bergthor agustsson

16:13
🔴 Brot (2 mín, Roughing / start serving at 16:20)

#14 bergthor agustsson

16:20
🔔 MARK (4 - 1, PP1)

#15 níels hafsteinsson, Stoð: #17 alex máni sveinsson, #19 kári arnarsson

19:49
🔴 Brot (2 mín, Grófur leikur)

#6 andri helgason

19:49
🔴 Brot (2 mín, Unsportsmanlike Conduct / start serving at 21:49)

#6 andri helgason

2. Lota

Tími
Lið
Atvik
22:13
🔴 Brot (2 mín, Ákeyrsla við batta)

#14 bergthor agustsson

29:24
🔔 MARK (4 - 2, EQ)

#19 sturla snorrason, Stoð: #25 hilmar sverrisson, #86 krisjanis abolins abols

32:19
🔔 MARK (4 - 3, EQ)

#25 hilmar sverrisson, Stoð: #15 viktor svavarsson

34:16
🔴 Brot (5 mín, Höfuðákeyrsla)

#14 eduard kascak

34:16
🔴 Brot (20 mín, Áfellisdómur)

#14 eduard kascak

39:48
🔴 Brot (2 mín, Fella)

#6 andri helgason

3. Lota

Tími
Lið
Atvik
42:13
🔴 Brot (2 mín, Krækja)

#21 pétur maack

44:44
🔴 Brot (2 mín, Halda)

#14 bergthor agustsson

54:20
🔴 Brot (2 mín, Krækja)

#86 krisjanis abolins abols

57:13
🔴 Brot (2 mín, Krækja)

#15 níels hafsteinsson

58:18
🔔 MARK (4 - 4, PP1)

#23 jere koikkalainen, Stoð: #84 hektor hrólfsson, #6 andri helgason

Framlenging

Tími
Lið
Atvik
63:31
🔔 MARK (4 - 5, EQ)

#23 jere koikkalainen, Án stoðsendinga

63:31
Markmaður af ís

#31 jóhann björgvin ragnarsson

63:31
Markmaður af ís

#50 tuomas heikkonen

Share This