Ekki vafðist það fyrir Akureyringum að leggja Fjölni að velli í Topp-deild kvenna á Akureyri í kvöld en SA vann stórsigur 8:1.
Þess ber þó að geta að markalaust var eftir 16 mínútna leik og því var ekki útlit fyrir svo stórar tölur. En þegar SA-konur voru komnar á bragðið þá gengu þær á lagið.
Berglind Huld Ríkarðsdóttir skoraði fyrsta markið á sautjándu mínútu og Silvía Björgvinsdóttir bætti við marki áður en fyrsta leikhluta var lokið.
Guðrún Ásta Valentine, Silvía, Sunna Björgvinsdóttir og Sólrún Assa Arnardóttir gerðu í raun út um leikinn í öðrum leikhluta.
Sunna skoraði aftur í þriðja leikhluta áður en Sigrún Árnadóttir gerði eina mark Fjölnis. Berglind Huld átti lokaorðið fyrir Akureyringar og innsiglaði 8:1 sigur.
Lið SA hefur verið sannfærandi í upphafi móts eins og búist var við og hefur unnið fjóra af fyrstu leikjunum en tapað einum í venjulegum leiktíma. Fjölnir vann ævintýralegan sigur gegn SR eftir vítakeppni á dögunum en var kippt niður á jörðin í kvöld. Liðið hefur unnið einn leik en tapað tveimur með miklum mun.
Mörk SA: Berglind Huld Ríkarðsdóttir 2, Silvía Björgvinsdóttir 2, Sunna Björgvinsdóttir 2, Guðrún Ásta Valentine, Sólrún Assa Arnardóttir.
Stoðsendingar SA: Sunna Björgvinsdóttir 2, Magdalena Sulova 2, Silvía Björgvinsdóttir, Sólrún Assa Arnardóttir, Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir, Kolbrún Garðarsdóttir, Freyja Rán Sigurjónsdóttir, Guðrún Ásta Valentine.
Mark Fjölnis: Sigrún Árnadóttir.
Stoðsendingar Fjölnis: Karen Þórisdóttir.
Myndatexti: Berglind Huld Ríkarðsdóttir í á móti SR á dögunum. Berglind skoraði tvívegis í kvöld fyrir SA.
Ljósmynd/Hafsteinn Snær
Leikur #12
laugardaginn 07. nóvember 2026 kl.16:45

Skautafélag Akureyrar
8
1

Fjölnir
1. Lota

#41 shawlee gaudreault

Leikmaður finnst ekki

#33 berglind huld ríkarðsdóttir, Stoð: #26 solrun assa arnardottir, #91 silvia bjorgvinsdottir

#5 sigrún árnadottir

#91 silvia bjorgvinsdottir, Stoð: #12 aðalheiður anna ragnarsdottir, Leikmaður finnst ekki
2. Lota

#10 guðrún ásta valentine, Stoð: #23 sunna bjorgvinsdottir

#91 silvia bjorgvinsdottir, Án stoðsendinga

#23 sunna bjorgvinsdottir, Stoð: #68 magdalena sulova, Leikmaður finnst ekki

#43 flosrun johannesdotti

#26 solrun assa arnardottir

#26 solrun assa arnardottir, Stoð: #11 freyja rán sigurjónsdóttir
3. Lota

#23 sunna bjorgvinsdottir, Stoð: #10 guðrún ásta valentine, #68 magdalena sulova

#5 sigrún árnadottir, Stoð: #22 karen þórisdóttir

#33 berglind huld ríkarðsdóttir, Stoð: #10 guðrún ásta valentine, #23 sunna bjorgvinsdottir

#26 solrun assa arnardottir

#13 laura-ann murphy

#6 arna gunnlaugsdottir

#41 shawlee gaudreault

Leikmaður finnst ekki
