Hjartveikum er ekki ráðlagt að fylgjast með leikjum Skautafélags Reykjavíkur og Fjölnis í Topp-deild kvenna á staðnum, eða í beinu streymi, þennan veturinn. Fólk er á eigin ábyrgð ef það vill hætta sér út í þessar aðstæður.
Fjölnir sigraði SR í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld 4:3 eftir framlengdan háspennuleik. Sigrún Agatha Árnadóttir réði úrslitum í leiknum þegar hún skoraði gullmark í framlengingu og tryggði Fjölni sigurinn og 2 stig en SR fær 1 stig þar sem jafnt var að loknum venjulegum leiktíma.
Ekki stefndi þó endilega í að SR myndi ná stigi út úr viðureign kvöldsins því Fjölnir var 3:1 yfir í þriðja og síðasta leikhlutanum.
Að loknum fyrsta leikhlutanum var Fjölnir yfir 1:0 með marki Flosrúnar Jóhannesdóttur.
Sigrún Agatha bætti við marki um miðjan annan leikhlutann áður en Arna Björg Friðjónsdóttir minnkaði muninn fyrir SR undir lok leikhlutans. SR fékk því von fyrir síðasta leikhlutann.
#5
sigrún árnadottir
- Skotstaða
- Hægri
- Fædd/ur
- 16. september 1987
- Þjóðerni
- ICE
Laura-Ann Murphy fyrirliði Fjölnis skoraði hins vegar þriðja mark Fjölnis eftir sjö mínútna leik í síðasta leikhlutanum og staðan var vænleg fyrir Fjölni þegar langt var liðið á leikinn.
En ef íshokkíunnendur hafa lært eitthvað á þessum keppnistímabili þá er það að ekki er hægt að slá nokkru föstu fyrr en leikjunum er formlega lokið. Og kannski ekki fyrr en leikmenn hafa farið í steypibað. Slík hefur dramatíkin verið í báðum deildunum.
Eftir rúmar 58 mínútur minnkaði Kristína Davidsdóttir muninn fyrir SR en líklega töldu flestir í Laugardalnum og þar væri hún aðeins að klóra í bakkann. En viti menn. Þegar einungis 15 sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma tókst Örnu Björg að jafna leikinn fyrir SR með sínu öðru marki og knýja fram framlengingu.
Það er ekki hægt að skálda þessa dramatík. Hér er um leið minnt á að síðast þegar þessi lið mættust fór viðureignin í vítakeppni sem dróst langt fram eftir kvöldi.
Íshokkí.is ráðleggur fólki að fara ekki á mis við leikina í Topp-deildunum þennan veturinn. Þá missið þið af epískum leikjum.
Mörk SR: Arna Björg Friðjónsdóttir 2, Kristína Davidsdóttir 1.
Stoðsendingar: Inga Rakel Aradóttir 2, Gunnborg Petra Jóhannsdóttir, Bríet María Friðjónsdóttir, María Guðrún Eiríksdóttir.
Mörk Fjölnis: Sigrún Agatha Árnadóttir 2, Flosrún Jóhannesdóttir 1, Laura-Ann Murphy 1.
Stoðsendingar: Elín Darkoh, Karen Þórisdóttir, Heiða Marín Ásmundardóttir,
Myndatexti: Sigrún Árnadóttir skoraði tvívegis fyrir Fjölni í kvöld og skoraði gullmarkið.
Ljósmynd/Bjarni Helgason
Leikur #7
föstudaginn 13. nóvember 2026 kl.19:45

Skautafélag Reykjavíkur
3
4

Fjölnir
1. Lota

#80 julianna thomson

#1 cassandra goyotte

#43 flosrun johannesdotti, Stoð: #25 elín darkoh

#10 arna björg friðjónsdóttir

#28 heiða marín ásmundardóttir

#10 arna björg friðjónsdóttir

framhjá
#23 brynja líf jóhannesdóttir
2. Lota

#10 steinunn sigurgeirsdóttir

#5 sigrún árnadottir, Án stoðsendinga

#5 inga rakel aradóttir

#17 elísabet erla grétarsdóttir

#10 arna björg friðjónsdóttir, Stoð: #5 inga rakel aradóttir
3. Lota

#13 laura-ann murphy, Stoð: #22 karen þórisdóttir, #28 heiða marín ásmundardóttir

#5 sigrún árnadottir

-

#15 kristína ngoc linh davidsdottir, Stoð: #5 inga rakel aradóttir, #29 gunnborg petra jóhannsdóttir

#80 julianna thomson

#10 arna björg friðjónsdóttir, Stoð: #19 bríet maría friðjónsdóttir, #20 maría guðrún eiríksdóttir

#80 julianna thomson
Framlenging

#5 sigrún árnadottir, Án stoðsendinga

#80 julianna thomson

#1 cassandra goyotte
