Myndatexti: Guðrún Ásta Valentine var skrefi á undan andstæðingunum og skoraði tvívegis fyrir SA.
Ljósmynd/Hafsteinn Snær.
Skautafélag Reykjavíkur náði í stig á Akureyri í Topp-deild kvenna í gærkvöldi en landsliðskonan Sunna Björgvinsdóttir tryggði SA tvö stig með gullmarki á elleftu stundu í framlengingunni.
Ekki þarf að spyrja að því að sjálfsögðu var spennan og dramatíkin alls ráðandi í leiknum eins og í flestum leikjum sem af er tímabilinu í Topp deildunum. Um það bil átta mínútur voru eftir þegar Gunnbjörg Jóhannsdóttir jafnaði leikinn fyrir SR í 4:4 og tryggði SR þar með stig og knúði fram framlengingu.
Einungis 8 sekúndur voru eftir af framlengingunni þegar Sunna skoraði gullmarkið fyrir SA og þar við sat. SA vann 5:4 og er sem fyrr í toppsæti deildarinnar. Liðið hefur unnið 4 af fyrstu 6 leikjunum og þann fimmta eftir framlengingu.
Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 1:1 en markahæsti leikmaður deildarinnar Silvía Rán Björgvinsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins fyrir SA en Berglind Leifsdóttir jafnaði fyrir SR.
Í öðrum leikhluta komu tvö mörk frá Guðrúnu Ástu Valentine og tókst henni þá að koma SA í 3:1. Það dugði skammt því SR jafnaði 3:3 áður en öðrum leikhluta var lokið með mörkum frá Bríeti Friðjónsdóttur og Ylfu Bjarnadóttur.

Myndatexti: Gunnborg Jóhannsdóttir átti þátt í þremur mörkum SR.
Ljósmynd/Hafsteinn Snær.
Í þriðja leikhlutanum skoraði Herborg Geirsdóttir fjórða mark SA en Gunnborg jafnaði eins og áður segir.
SR-ingar sýndu því mikla seiglu í leiknum með því að svara fyrir sig þegar liðið lenti undir hvað eftir annað. Tryggði það liðinu stig en liðinu tókst þó aldrei að komast yfir í leiknum.
Sunna átti þátt í fjórum mörkum hjá SA því hún gaf þrjár stoðsendingar. Hjá SR gaf Gunnborg tvær stoðsendingar auk þess að skora.
Mörk SA: Guðrún Ásta Valentine 2, Silvía Rán Björgvinsdóttir, Herborg Geirsdóttir, Sunna Björgvinsdóttir.
Stoðsending: Sunna Björgvinsdóttir 3, Silvía Rán Björgvinsdóttir, Berglind Huld Ríkarðsdóttir, Sólrún Assa Arnardóttir, Magdalena Sulova.
Mörk SR: Berglind Leifsdóttir, Bríet Friðjónsdóttir, Ylfa Bjarnadóttir, Gunnborg Jóhannsdóttir.
Stoðsendingar: Gunnborg Jóhannsdóttir 2, Bríet Friðjónsdóttir.
Leikur #8
laugardaginn 21. nóvember 2026 kl.16:45

Skautafélag Akureyrar
5
4

Skautafélag Reykjavíkur
1. Lota

#41 shawlee gaudreault

#80 julianna thomson

#91 silvia bjorgvinsdottir, Stoð: #33 berglind huld ríkarðsdóttir, #26 solrun assa arnardottir

#18 berglind leifsdóttir, Stoð: #19 bríet maría friðjónsdóttir
2. Lota

#10 guðrún ásta valentine, Stoð: #23 sunna bjorgvinsdottir

#10 guðrún ásta valentine, Stoð: #23 sunna bjorgvinsdottir

#19 bríet maría friðjónsdóttir, Stoð: #29 gunnborg petra jóhannsdóttir

#33 berglind huld ríkarðsdóttir

#88 ylfa kristín bjarnadottir, Stoð: #29 gunnborg petra jóhannsdóttir
3. Lota

#77 herborg geirsdottir, Stoð: #23 sunna bjorgvinsdottir, #91 silvia bjorgvinsdottir

#29 gunnborg petra jóhannsdóttir, Án stoðsendinga

#23 heiður atladóttir

#23 sunna bjorgvinsdottir

#26 solrun assa arnardottir

-
Framlenging

#23 sunna bjorgvinsdottir, Stoð: #91 silvia bjorgvinsdottir, #68 magdalena sulova

#41 shawlee gaudreault

#80 julianna thomson
