Æfingarleikur gegn Mexíkó – Heimsmeistaramót U18

Æfingarleikur gegn Mexíkó – Heimsmeistaramót U18

DSC02174 (1)

Í gærkvöldi mætti íslenska U18 landsliðið Mexíkó í æfingarleik í Skautahöllinni á Akuryeri. Eins og flestir vita verður heimsmeistaramót U18, þriðja deild; hópur A, haldið á Akureyri 12. – 18 mars. Deildin samanstendur af 6 liðum. Íslandi, Ísrael, Tyrklandi, Lúxemburg, Bosníu og Hersegóvinu og Mexíkó.

Ísland var með yfirhöndina fyrstu tvær loturnar og stjórnaði pekkinum meira og minna. Eftir fyrstu tvær loturnar var Ísland í forustu en Mexíkó kom stertk til baka í síðustu lotunni og endaði á því að sigra leikinn 4-5.

Margt jákvætt var hægt að sjá í leik Íslands. Það var mikil barátta í þeim allan leikinn og gekk vel fyrstu tvær loturnar. Eitthvað gekk þó brösulega í síðasta leikhlutanum sem þjálfarateymið mun skoða og reyna að stilla saman strengi á lokadegi fyrir mótið.

Fyrsti leikur Íslands á mótinu er einmitt á móti Mexíkó og því gott að fá æfingarleik gegn þeim.

Smelltu hér fyrir miðasölu á mótið! Stakur leikur kostar 2000 kr en hægt er að fá vikupassa, sem gildir á alla leiki mótsins, fyrir aðeins 6000 kr!

Hér að neðan má sjá leikjaplan Íslands:

ÍSL – MEX 12.03 – kl 20:00

ÍSL – BIH 13.03 – kl 20:00

ÍSL – TYR 15.03 – kl 20:00

ÍSL – LUX 16.03 – kl 20:00

ÍSL – ÍSR 18.03 – kl 18:00