Það var sannkallaður háspennuleikur í Skautahöllinni á Akureyri þegar SA og SR mættust í Toppdeild karla á laugardaginn. Leikurinn endaði 5-4 fyrir heimamenn eftir framlengingu þar sem Unnar Rúnarsson tryggði SA sigurinn með marki á fyrstu mínútu framlengingarinnar.
SA 5 – 4 SR (0-1, 2-0, 2-3, 1-0)
SR byrjaði leikinn af krafti og skoraði fyrsta mark leiksins, en SA svaraði með tveimur mörkum í annarri lotu og náði forystu. Þriðji leikhluti var hraður og opinn, þar sem fimm mörk litu dagsins ljós.

SR gerðu 2 mörk seint til að koma leiknum í framlengingu (Hafsteinn Snær Þorsteinsson)
SR jafnaði snemma í þriðja leikhluta en SA komst fljótt aftur tveimur mörkum yfir. Þegar um fimm mínútur voru eftir leit allt út fyrir sigur heimamanna. Þeir náðu ekki að klára leikinn í venjulegum leiktíma þar sem SR náði að knýja fram framlengingu með tveimur mörkum seint í leiknum.
Í framlengingunni þurfti aðeins 32 sekúndur áður en Unnar Rúnarsson skoraði sigurmarkið.
Tölfræði:
SA:
- Heiðar Jóhannsson 1/1
- Marek Vybostok 1/1
- Unnar Rúnarsson 1/0
- Ormur Jónsson 1/0
- Jóhann Leifsson 1/0
- Arnar Kristjánsson 0/1
- Andri Mikaelsson 0/1
Jakob Jóhannesson – 24/28 (85.7%)
SR:
- Sölvi Atlason 1/1
- Kári Arnarsson 1/1
- Haukur Steinsen 0/2
- Styrmir Maack 1/0
- Hákon Magnússon 0/1
- Alex Máni Sveinsson 0/1
- Daniel Otuoma 0/1
Ævar Björnsson – 29/34 (85.3%)

Unnar tryggði stigin tvö (Hafsteinn Snær Þorsteinsson)
Næsti leikur Toppdeildar karla er í kvöld, þriðjudag, þegar þessi tvö lið eigast aftur við í Laugardalnum.
