SR og Fjölnir mættust í Toppdeildar karla í Laugardalnum í gærkvöldi – heimamenn í SR sýndu yfirburði frá upphafi til enda og unnu öruggan 8–1 sigur.
LEIKURINN: SR 8 – 1 FJÖLNIR (2–0, 2–1, 4–0)
SR komst 2-0 yfir í fyrsta leikhluta með mörkum frá Alex Sveinssyni og Sölva Atlasyni, sem átti frábæran leik og skoraði þrennu.
Fjölnir minnkaði muninn í 3–1 með marki frá Gabríel Egilssyni, en það reyndist vera eina mark þeirra í leiknum. SR bætti stöðugt í og skoraði fjögur mörk í loka þriðjungnum þar sem Axel Orongan skoraði tvisvar og lagði upp eitt mark.

Milos þjálfari stýrir bekknum eins og herforingi (Hafsteinn Þorsteinsson)
Tölfræði
SR:
- Sölvi Atlason 3/1
- Axel Orongan 2/2
- Hákon Magnússon 0/3
- Heiðar Kristveigarson 0/3
- Alex Sveinsson 1/1
- Eduard Kascak 0/2
- Styrmir Maack 1/0
- Níels Hafsteinsson 1/0
- Þorgils Eggertsson 0/1
- Haukur Steinsen 0/1
Ævar Björnsson 20/21 (95,2%)
Fjölnir:
- Gabríel Egilsson 1/0
- Kristján Jóhannesson 0/1
- Róbert Pálsson 0/1
Tuomas Heikkonen 51/59 (86,4%)

Það var gaman hjá SR í gær (Hafsteinn Þorsteinsson)
Næstu leikir í toppdeild karla eru svo næstu helgi þegar ofurhelgi fer fram á Akureyri þar sem við fáum leik föstudag, laugardag og sunnudag, allir spila við alla, þið viljið ekki missa af því.
