Leikurinn fyrir Patta!

by | 11 feb, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Í Skautahölinni í Laugardal í kvöld mættust karlalið Skautafélags Reykjavíkur og Fjölnis í 19 leik Toppdeildar karla. En þessi leikur var ekki venjulegur deildarleikur heldur var þetta leikur til heiðurs Patreks Freys Sveinsson, U18 leikmanns Skautafélags Reykjavíkur, sem lést í hörmulegu bílslysi 5. febrúar síðastliðinn.  Þessi leikur átti, samkvæmt leikjadagskrá, að vera í Egilshöll en stjórnir félaganna ákváðu að færa leikinn niður í Skautahöllina í Laugardal og spila leikinn til heiðurs Patta og öll miðasala, kökubasar og veitingasala myndi renna óskipt til fjölskyldu Patreks.

Umgjörðin í kringum þennan leik var engu lík. Einstaklega innileg og falleg stemmning var í Skautahöllinni þar sem búið var að stilla upp myndum af Patreki ásamt gestabók sem áhorfendur gátu skrifað nafnið sitt í.  Veglegur kökubasar var á staðnum en hann seldist hratt upp og óendanlegar langar raðir voru í veitingasöluna.

Afar ólíklegt er að fleiri hafi mætt og horft á íshokkíleik á Íslandi en líklega voru rúmlega 1200 manns sem lögðu leið sína í höllina.

Bæði lið hituðu upp fyrir leik í vestum merktum með nafni og númeri Patreks. Mynd: Hafsteinn Snær.

Áður en leikur hófst var minningarstund um Patrek þar sem formenn félaganna, Friðjón Gunnarsson og Emil Borg, ásamt Séra Benedikt Sigurðssyni sem fengu bæði lið og U18 lið SR til að sameinast í hring á miðjum ís til að hafa einnar mínútu þögn til minningar um Patrek. Virkilega magnþrungin og falleg stund. Eftir þessa minningarstund var viðhafnar uppkast þar sem Séra Benedikt Sigurðsson fékk til sín fyrirliða beggja liða á miðjuna og lét pökkinn falla.  Tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson tók lagið “Vor í Vaglaskógi” á milli fyrsta og annars leikhluta við góðar undirtektir.  Á milli annars og þriðja leikhluta var pekkjakast, sem hefur tíðkast á íshokkíleikjum hérlendis og víða erlendis, þar sem áhorfendur kaupa sér merktan pökk, kasta honum inn á ísinn og freista þess að reyna að láta hann renna eins nálægt miðju og hægt er.  Töluverðan tíma tók að kasta öllum pekkjunum inn á ísinn, slíkur var fjöldinn.  Undirritaður hefur sjaldan ef ekki aldrei séð jafn mikinn fjölda af pekkjum á ísnum samtímis.

Bjarni Helgason mátti hafa sig allann við að verða ekki fyrir pekkjarflóðinu! Mynd: Helgi Páll Þórisson

En að leiknum sjálfum

Fyrsti leikhluti einkenndist af því að bæði lið voru nokkuð varkár og voru smá stund að finna taktinn í sínum leik.  Jóhann Björgvin Ragnarsson var mættur á milli stanganna hjá SR eftir fjarveru eftir smá meiðsli í desember. Hinu megin var Tuomas Heikkonen í marki Fjölnis en hann hafði töluvert meira að gera í leikhlutanum þar sem SR-ingar skutu á hann 21 sinni á meðan Jóhann fékk einungis 6 skot í fyrsta leikhluta.  Eftir fínt samspil skorði Alex Máni Sveinsson fyrsta mark leiksins eftir stoðsendingu frá Hauki Steinsen.  Rétt rúmum fjórum mínútum síðar var Alex Máni aftur á ferðinni og skorði laglegt mark með bakhönd og jók en á forystu SR í leiknum.  Þegar rétt tæpar 4 mínútur lifðu lotunnar skoraði Hákon Marteinn Magnússon glæsilegt mark frá bláu línunni sem sveif á milli allra leikmanna sem stóðu fyrir framan mark Fjölnis og inn fór pökkurinn.  Staðan því orðin 0 – 3, SR í vil.

Annar leikhluti var betri hjá Fjölni þar sem þjálfari þeirra, Gunnar Guðmundsson, hefur eflaust lesið yfir hausamótunum á sínum mönnum og hvatt áfram.  Allt annað var að sjá til Fjölnis í þeim leikhluta og náðu þeir nokkrum góðum sóknum að marki SR sem þó skiluðu ekki mörkum.  Þegar rétt rúmar tvær mínútur voru liðnar af leikhlutanum komst Ævar Arngrímsson í ákjósanlegt færi og mokaði pekkinum upp í þaknetið fram hjá Heikkonen í marki Fjölnis.  Stuttu síðar kom líklega eitt af betri mörkum leiksins en það var gríðarlega gott skot frá Jóni Alberti Helgasyni, Fjölni, sem skaut pekkinum í þverslánna og inn, Jóhann Björgvin í marki SR kom engum vörnum við.  Hákon Magnússon bætti svo enn á markareikninginn sinn þegar lítið lifði lotunnar og loka staða eftir aðra lotu því orðin 1 – 5, SR í vil.

SR-ingar róuðu niður spilið töluvert í þriðja leikhluta og gáfu nokkrum yngri leikmönnum tækifæri til að spreyta sig á meðan Fjölnir reyndu hvað þeir gátu til minnka muninn.  Hákon Magnússon fullkomnaði þrennuna sína í leiknum þegar þriðja lota af rétt hálfnuð.  Loka staðan í leiknum því 1 – 6, SR í vil.

Hákon Marteinn með þrennu og eina stoðsendingu í leiknum. Mynd: Hafsteinn Snær.

Leikurinn var einstaklega prúðmannlega leikinn en alls voru dæmdar 6 refsimínútur í leiknum, tveir dómar á SR og einn á Fjölni, sem kannski endurspeglar andann sem var yfir leiknum og umgjörð.

Leikurinn í tölum

Fjölnir

  • Jón Albert Helgason (1/0)
  • Úlfar Andrésson (0/1)
  • Freyr Waage (0/1)

Skautafélag Reykjavíkur

  • Hákon Marteinn Magnússon (3/1)
  • Alex Máni Sveinsson (2/0)
  • Ævar Arngrímsson (1/0)
  • Styrmir Maack (0/1)
  • Haukur Steinsen (0/2)
  • Rihards Verdins (0/2)
  • Kári Arnarsson (0/1)

Umfjöllun annara fjölmiðla um leikinn:

Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek – MBL.is

Mínútuþögn á minningarleik um Pat­rek Frey – Visir.is

Leika til minningar um Patrek Frey – RÚV

Hefillinn var merktur sérstaklega fyrir þennan leik með leiknúmeri Patreks! Mynd: Guðlaun I. Þorsteinsdóttir

Formenn félaganna ásamt Séra Benedikt Sigurðssyni við upphaf minningarstundar á miðjum ís. Mynd: Guðlaug I. Þorsteinsdóttir.

“Kylfurnar út” – Kylfur leikmanna settar út til minningar um góðan félaga. Mynd: Guðlaug I. Þorsteinsdóttir.

Share This