U18 ára karlalandslið Íslands í íshokkí tekur þátt í heimsmeistarakeppni IIHF 3. deildar B sem fram fer í Sarajevo í Bosníu og Hersegóvínu dagana 13.–19. febrúar 2026.
Mótið er leikið í Skenderija Sports Arena þar sem liðin sex mætast fyrst í þremur leikjum. Að þeim loknum verður liðum raðað í sæti og taka þá við undanúrslit og úrslitaleikir.

Elías og Elvar fóru einnig sem markmenn með U20 ára landsliðinu
Hópurinn
MARKMENN
Elías Rúnarsson
Elvar Sigurðarson
VARNARMENN
Aron Ingason
Elvar Skúlason
Finnur Finnsson
Magnus Sigurólason
Tryggvi Snævarsson
Bjartur Westin
SÓKNARMENN
Helgi Bjarnason
Breki Brekason
Mikael Eiríksson
Aron Gautason
Þorsteinn Garðarsson
Gabríel Egilsson
Sölvi Blöndal
Baldur Mortensen
Sæmundur Þorsteinsson
Ýmir Hafliðason Garcia
Alex Ingason
Askur Reynisson
STARFSLIÐ:
Sigurður Sveinn Sigurðsson, Fararstjóri
Gunnlaugur Thoroddsen, Aðalþjálfari
Hákon Marteinn Magnússon, Aðstoðarþjálfari
Jóhann Páll Jónsson, Heilbrigðisstarfsmaður
Ingi Snorri Bjarkason, Tækjastjóri

Helgi Bjarnason úr leik með liðinu í fyrra
LEIKIR ÍSLANDS Á HM U18 KARLA
• Föstudagur 13. febrúar: Lúxemborg – Ísland, kl. 16:00 (kl. 15:00 ísl tíma)
• Laugardagur 14. febrúar: Ísland – Túrkmenistan, kl. 12:30 (kl. 11:30 ísl tíma)
• Mánudagur 16. febrúar: Ísland – Taíland, kl. 16:00 (kl. 15:00 ísl tíma)
Að riðlakeppni lokinni verður liðum raðað í sæti og leikið til undanúrslita og úrslita.
BEINAR ÚTSENDINGAR
Allir leikir mótsins verða í beinni útsendingu á streymisveitunni icehockeyiceland.tv

Leiktímar á myndinni eru á staðartíma
Við hvetjum alla íshokkí áhugamenn til að fylgjast með U18 karlalandsliðinu á mótinu og styðja strákana í þessari spennandi áskorun. Umfjöllun, úrslit og leikskýrslur verða birtar eftir því sem mótið vindur fram.
