Öruggur sigur gegn Lúxemborg í fyrsta leiknum í Bosníu

by | 14 feb, 2026 | Fréttir, Landsliðsstarfið

U18 ára karlalandslið Íslands fór afar sannfærandi af stað á heimsmeistaramótinu í Sarajevo í Bosníu þegar liðið lagði Lúxemborg að velli, 12–1, í fyrsta leik sínum í riðlakeppninni.

Íslenska liðið var mun sterkari aðilinn frá fyrstu mínútu og tryggði sér öruggt forskot áður en yfir lauk.


LEIKURINN

Ísland komst yfir strax í fyrstu lotu með mörkum frá Helga Bjarnasyni og Ými Hafliðasyni og leiddi 2–0 að henni lokinni.

Í annarri lotu jókst forskotið verulega. Ísland skoraði fjögur mörk og tók öll völd á ísnum. Sóknarleikurinn var beittur og nýting góð, en liðið lét pökkinn ganga hratt og skapaði sér mörg færi.

Þriðja lotan var síðan einhliða. Ísland bætti við sex mörkum og innsiglaði sannkallaðan stórsigur, 12–1.

Íslenska liðið skaut 61 skoti á mark gegn 8 skotum Lúxemborgar og var yfirburðurinn því algjör í öllum tölfræðiflokkum.


Ýmir Hafliðason maður leiksins í gær

TÖLFRÆÐI (ÍSLAND)

Mörk og stoðsendingar:

  • Ýmir Hafliðason – 2/2
  • Helgi Bjarnason – 3/0
  • Alex Ingason – 2/1
  • Mikael Eiríksson – 0/3
  • Breki Brekason – 1/1
  • Askur Reynisson – 1/1
  • Sölvi Blöndal – 1/1
  • Þorsteinn Garðarsson – 1/1
  • Sæmundur Þorsteinsson – 0/2
  • Baldur Mortensen – 0/2
  • Finnur Finnsson – 0/2
  • Magnús Sigurólason – 1/0
  • Aron Gautason – 0/1
  • Tryggvi Snævarsson – 0/1
  • Bjartur Westin – 0/1

Markvörður:
Elvar Sigurðarson – 7/8 skot (87,5%)

Elvar fékk einungis á sig eitt mark í leiknum


Næsti leikur Íslands er strax í dag gegn Túrkmenistan klukkan 12:30 að staðartíma.

Share This