U18 ára karlalandslið Íslands vann öruggan 5–1 sigur á Túrkmenistan í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í Bosníu.
Íslenska liðið lagði grunninn að sigrinum strax í fyrstu lotu og hélt forskotinu út leikinn.
LEIKURINN
Ísland komst yfir strax á fyrstu mínútu þegar Elvar Skúlason skoraði. Staðan varð 3–0 eftir fyrstu lotu eftir mörk frá Ými Hafliðasyni og Mikael Eiríkssyni.
Í annarri lotu jók Ísland forskotið enn frekar. Ýmir Hafliðason skoraði sitt annað mark leiksins og staðan varð 4–0 áður en Túrkmenistan minnkaði muninn. Skömmu síðar svaraði Aron Gautason og tryggði 5–1 stöðu sem reyndist lokatölur leiksins.
Þriðja lotan var markalaus en Ísland hafði stjórn á leiknum og leyfði andstæðingunum fá færi.
Ísland skaut 55 skotum á mark gegn 21 skoti Túrkmenistan.

Nýliðinn Breki Brekason, sonur fyrrum landsliðsmanns Jónas Breka Magnússonar
TÖLFRÆÐI (ÍSLAND)
• Ýmir Hafliðason – 2/0
• Mikael Eiríksson – 1/1
• Askur Reynisson – 0/2
• Elvar Skúlason – 1/0
• Aron Gautason – 1/0
• Breki Brekason – 0/1
• Alex Ingason – 0/1
• Helgi Bjarnason – 0/1
Elías Rúnarsson – 20/21 (95,2%)

Sölvi Blöndal, sonur fyrrum landsliðsmannsins Sigurðs Sveins Sigurðssonar
Á morgun er frídagur og næsti leikur Íslands er því á mánudaginn og er hann gegn Taílandi klukkan 15:00 á íslenskum tíma
