Róbert Steingrímsson hélt hreinu í öruggum sigri í Egilshöll

by | 16 feb, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

SA átti stórleik þegar liðið heimsótti Fjölni í Egilshöll á laugardaginn og vann sannfærandi 8–0 sigur. Gestirnir náðu undirtökunum snemma og héldu pressunni allan leikinn, á meðan Fjölnir náði aldrei að svara.

LEIKURINN: FJÖLNIR 0–8 SA (0–3, 0–1, 0–4)

SA lagði grunninn í fyrsta leikhluta með þremur mörkum. Matthías Stefánsson skoraði fyrsta markið eftir ellefu mínútna leik. Skömmu síðar bættu Hafþór Sigrúnarson og Andri Mikaelsson við tveimur mörkum og SA fór með 3–0 forystu í hlé.

Í öðrum leikhluta hélt SA áfram að stjórna leiknum og Hafþór Sigrúnarson kom leiknum í 4-0.
Í þriðja leikhluta bætti SA við fjórum mörkum og gerði endanlega út um leikinn. Ormur Jónsson og Jóhann Leifsson skoruðu í power play áður en Orri Blöndal og Harrison Nagel skoruðu síðustu 2 mörkin.

SA var með mikla yfirburði í skotum (45–12) og hélt Fjölni markalausum allan leikinn.

Hafþór Sigrúnarson með 4 stiga leik (Hafsteinn Þorsteinsson)

TÖLFRÆÐI

SA:

  • Hafþór Sigrúnarson – 2/2
  • Andri Mikaelsson – 1/3
  • Jóhann Leifsson – 1/3
  • Harrison Nagel – 1/2
  • Orri Blöndal – 1/2
  • Ormur Jónsson – 1/0
  • Matthías Stefánsson – 1/0
  • Heiðar Jóhannsson – 0/1
  • Arnar Kristjánsson – 0/1
  • Bjarmi Kristjánsson – 0/1
  • Uni Blöndal – 0/1

Róbert Steingrímsson – 12/12 (100%)

Fjölnir:

Þórir Aspar – 37/45 (82,2%)

Það hefur verið gaman á leiðinni norður aftur (Hafsteinn Þorsteinsson)

Eins og staðan er núna eru næstu leikir í Toppdeild Karla í ofurhelgi í Laugardalshöll helgina 27. febrúar til 1. mars, en eftir á að koma fyrir einum frestuðum leik milli SR og SA.

Share This