SA deildarmeistarar í Toppdeild kvenna

by | 16 feb, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

SA fór með 5–2 sigur gegn SR í Skautahöllinni í Laugardal síðastliðin föstudag eftir sterka frammistöðu í öðrum leikhluta.

LEIKURINN: SR 2–5 SA (0–0, 1–3, 1–2)

Fyrsti leikhluti var markalaus og jafnræði með liðunum. Í öðrum leikhluta tók leikurinn við sér. Silvía Björgvinsdóttir kom SA yfir snemma í lotunni. Þegar lotan var rúmlega hálfnuð höfðu SA konur bætt við tveimur mörkum frá Amöndu Bjarnadóttur og annað frá Silvíu. SR svaraði með marki frá Ragnhildi Kjartansdóttur í power play og minnkaði muninn, en SA hafði yfirhöndina og staðan 1–3 eftir tvo leikhluta.

Í þriðja leikhluta jók SA forskotið þegar Guðrún Valentine skoraði í tvígang gegn einungis einu marki frá SR og 5-2 sigur fyrir SA því staðreynd eftir mikla yfirburði í skotum, 44 gegn 21.

Guðrún Valentine skoraði tvö mörk og er hún einungis 14 ára gömul (Ólafur Þorgrímsson)

TÖLFRÆÐI

SA:

  • Silvía Björgvinsdóttir – 2/1
  • Guðrún Valentine – 2/0
  • Magdalena Sulova – 0/2
  • Amanda Bjarnadóttir – 1/0
  • Sveindís Sveinsdóttir – 0/1
  • Kolbrún Björnsdóttir – 0/1

Shawlee Gaudreault – 19/21 (90,5%)

SR:

  • Ragnhildur Kjartansdóttir – 1/1
  • Gunnborg Jóhannsdóttir – 1/0

Julianna Thomson – 39/44 (88,6%)

(Ólafur Þorgrímsson)

Næstu helgi fer fram ofurhelgi í Toppdeild kvenna í Reykjavík, eitthvað sem íshokkí áhugafólk vill ekki missa af.

Share This