U18 ára karlalandslið Íslands tapaði 4–2 gegn Taílandi í síðasta leik sínum í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Sarajevo.
Leikurinn var jafn framan af en Taílendingar nýttu sín færi betur í síðari hluta leiksins.

Helgi Bjarnason fyrirliði maður leiksins
LEIKURINN: ÍSL – TAÍ 2 – 4 (1-1, 0-1, 1-2)
Taíland komst yfir í fyrstu lotu en Mikael Eiríksson jafnaði fyrir Ísland og staðan var 1–1 að henni lokinni.
Í annarri lotu náði Taíland aftur forystu og jók muninn í 2–1 og þannig stóðu leikar eftir tvo leikhluta.
Í þriðju lotu jók Taíland forskotið í 4–1 áður en Askur Reynisson minnkaði muninn seint í leiknum. Nær komst íslenska liðið ekki og lokatölur urðu 4–2.
Markvörður Íslands, Elvar Sigurdarson, varði 21 af 25 skotum.
TÖLFRÆÐI (ÍSLAND)
- Mikael Eiríksson – 1/0
- Askur Reynisson – 1/0
- Ýmir Hafliðason – 0/1
- Alex Ingason – 0/1
- Gabriel Egilsson – 0/1
Elvar Sigurðarson – 21/25 (84%)

Það var ekki kátt í höllinni
Íslenska liðið mætir heimamönnum í Bosníu í undanúrslitaleik mótsins á morgun, 18. febrúar, klukkan 18:30 að íslenskum tíma.
