Friðjón formaður SR íshokkí býður borgarfulltrúum í heimsókn!

by | 19 feb, 2026 | Fréttir, Grasrótin

Visir.is birti í gær gott viðtal við Friðjón B. Gunnarsson formann íshokkídeildar Skautafélags Reykjvíkur, þar sem hann bendir á nauðsyn þess að aðstaða í Laugardalnum verið bætt og byggt við húsið. Forleikurinn að þessu viðtali var góð grein eftir Friðjón á visir.is 17. febrúar síðastliðinn, þar sem hann fór yfir stöðuna hjá félaginu. Það er í raun kreppuástand í skautasvellsmálum á höfuðborgarsvæðinu. Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður hafa um langa hríð verið að skoða þessi mál en ekki tekið skrefið og byggt upp þessa sjálfsögðu þjónustu fyrir íbúa sína. Skemmst er að minnast viðtalsins sem birt var á RUV fyrr í vetur við Ívar Pétursson í Hafnarfirði sem bjó til svell í garðinum heima hjá sér vegna þess að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa ekki sýnt þessu áhuga. Sjá frétt RÚV hér.  Spyrja verður hversu lengi þessi sveitarfélög ætli að vera annars flokks í þjónustu við íbúa.

Skautafólk hér á suðvestur horni landsins er orðið þreytt á skilningsleysi sveitarstjórnarmanna. Skautasvell er almenningsmannvirki sem er einnig nýtt fyrir íþróttaiðkun. Svona mannvirki gegnir lykilhlutverki í bættri lýðheilsu þjóðarinnar og nærþjónustu sveitarfélaga við íbúa. Það er ekki hægt að skattleggja sig frá þeim offitufaraldri sem geisar á landinu líkt og Heilbrigðisráðherra virðist halda. Holl fjölbreytt hreyfing sem mætir áhuga íbúanna er eina leiðin áfram. Hreyfing er lykillinn að árangri í baráttu við offitupúkann.

Friðjón býður í viðtalinu þeim aðilum sem bjóða sig fram til borgarstjórnar Reykjavíkur að heimsækja félagið og kynna sér þessi mál. Íshokkí.is tekur undir með Friðjóni og hvetur um leið sveitarstjórnarfólk á suðvestur hluta landsins til þess að setja byggingu á skautasvelli á dagskrá.

Viðtalið við Friðjón á Visir.is má finna hér.

Mynd fengin að láni frá visir.is

 

Share This