U18 ára karlalandslið Íslands tryggði sér sæti í úrslitum í Sarajevo með glæsilegum 8–2 sigri á Bosníu og Hersegóvínu í undanúrslitum.
Íslenska liðið var beitt frá upphafi til enda og lét stemninguna í Skenderija-höllinni ekki hafa áhrif á sig.

Frá vinstri: Aron Ingason, Helgi Bjarnason, Elvar Skúlason
LEIKURINN: ÍSL – BIH 8 – 2 (3-2, 3-0, 2-0)
Bosníumenn komust yfir snemma leiks en Ísland svaraði af krafti. Ýmir Hafliðason jafnaði og í kjölfarið komu mörk frá Gabríel Egilssyni og Breka Brekasyni sem tryggðu Íslandi 3–2 forystu eftir fyrstu lotu.
Í annarri lotu tók Ísland völdin. Helgi Bjarnason skoraði og skömmu síðar bætti Aron Ingason við marki og svo loks Aron Gautason og staðan orðin 6–2 eftir annan leikhluta.
Í þriðju lotu kláraði Ísland leikinn endanlega. Alex Ingason skoraði í power play og Helgi Bjarnason bætti við sínu öðru marki leiksins. Lokatölur 8–2 og sannfærandi sigur staðreynd.
Ísland vann skotabaráttuna 45–23 og nýtti færin sín vel þegar á leið og markvörður Íslands, Elías Rúnarsson, varði 21 af 23 skotum.
TÖLFRÆÐI (ÍSLAND)
- Helgi Bjarnason – 2/2
- Breki Brekason – 1/2
- Ýmir Hafliðason – 1/2
- Alex Ingason – 2/0
- Aron Gautason – 1/1
- Gabriel Egilsson – 1/1
- Magnús Sigurólason – 0/1
- Bjartur Westin – 0/1
- Þorsteinn Garðarson – 0/1
- Tryggvi Snævarsson – 0/1
Elías Rúnarsson – 21/23 (91,3%)

Starfsliðið sem heldur utan um strákana úti í Bosníu
Ísland mætir Taílandi í úrslitaleik mótsins í dag klukkan 18:30 að íslenskum tíma. Þar er bæði gullverðlaun og sæti í deildinni fyrir ofan í húfi.
