Svo skemmtilega vill til að með Undir 18 ára landsliði Íslands í íshokkí eru tveir leikmenn sem eiga feður sem báðir voru landsliðsmenn og eiginlega goðsagnir í íslenskum íshokkí heimi. Sigurður Sveinn Sigurðsson formann Skautafélags Akureyrar sem allan sinn langa og farsæla feril lék í treyju númer 13 og Jónas Breki Magnússon gullsmiður í Danmörku sem lék sinn langa og farsæla feril lék í treyju númer 7. Báðir eru þeir hoknir af reynslu og báðir eru í Bosníu að fylgjast með sonum sínum og íslenska ungmenna liðinu. En liðið leikur hreinan úrslitaleik um gull medalíu síðar í kvöld.
Á myndinni hér að ofan má sjá frá vinstri: Sölvi Sigurðarson Blöndal #13, Sigurður Sveinn var númer #13, Jónas Breki Magnússon var númer 7 og Breki Brekason #7
