SR fer með fullt hús úr ofur helginni

by | 24 feb, 2026 | Fréttir, Toppdeild Kvenna

Það var sannkölluð ofurhelgi í Toppdeild kvenna þar sem þrír leikir fóru fram, alls voru skoruð 15 mörk og allir spiluðu við alla.

SR 1–0 SA (0–0, 0–0, 1–0)

Skautahöllin í Laugardal – Föstudagur

Það var varnarleikurinn sem réð ferðinni þegar SR og SA mættust á föstudagskvöld. Fyrstu tveir leikhlutarnir voru markalausir þar sem markverðir liðanna stóðu vaktina með prýði.

Sigurmarkið kom loks á 44. mínútu þegar Ragnhildur Kjartansdóttir skoraði fyrir SR eftir stoðsendingu frá Gunnborgu Jóhannsdóttur.

SA vann skotabaráttuna 35–24 og Julianna Thomson hélt hreinu með 35 vörslum.

TÖLFRÆÐI

SR:

  • Ragnhildur Kjartansdóttir – 1/0
  • Gunnborg Jóhannsdóttir – 0/1

Julianna Thomson – 35/35 (100%)

SA:

Shawlee Gaudreault – 23/24 (95,8%)

(Hafsteinn Þorsteinsson)

Fjölnir 2–3 SA (1–0, 1–1, 0–2)

Skautahöllin í Egilshöll – Laugardagur

Fjölnir byrjaði betur og komst yfir í fyrsta leikhluta með marki frá Evu Hlynsdóttur og Flosrún Jóhannesdóttir bætti svo við öðru marki eftir 30 mínútna leik til að koma honum í 2-0. SA minnkaði muninn stuttu seinna þegar Guðrún Valentine skoraði þegar 5 mínútur voru eftir af leikhlutanum.

Í þriðja leikhluta tók SA svo yfir. Guðrún Valentine skoraði sitt annað mark áður en Herborg Geirsdóttir tryggði SA 3–2 sigur undir lokin.

TÖLFRÆÐI

SA:

  • Guðrún Valentine – 2/0
  • Herborg Geirsdóttir – 1/1
  • Sólrún Arnardóttir – 0/2
  • Lara Jóhannsdóttir – 0/1
  • Eyrún Garðarsdóttir – 0/1
  • Aníta Benjamínsdóttir – 0/1

Shawlee Gaudreault 13/15 (86,7%)

Fjölnir:

  • Flosrún Jóhannsdóttir – 1/1
  • Eva Hlynsdóttir – 1/0
  • Elísa Sigurfinnsdóttir – 0/1
  • Steinunn Sigurgeirsdóttir – 0/1
  • Laura-Ann Murphy – 0/1

Karítas Halldórsdóttir 34/37 (91,9%)

(Bjarni Baldursson)

Fjölnir 2–7 SR (0–2, 1–0, 1–5)

Skautahöllin í Egilshöll – Sunnudagur

Í Egilshöll var engin miskunn. SR skoraði tvö snemma og bætti við fimm mörkum í þriðja leikhluta eftir að Fjölnir hafði haldið sér inni í leiknum.

Teresa Snorradóttir skoraði tvö mörk fyrir SR og Berglind Leifsdóttir var einnig atkvæðamikil. SR vann skotabaráttuna 31–20 og tryggði sér öruggan 7–2 sigur.

TÖLFRÆÐI

SR:

  • Eleanor Ålstig – 0/4
  • Gunnborg Jóhannsdóttir – 0/3
  • Berglind Leifsdóttir – 2/0
  • Teresa Snorradóttir – 2/0
  • Ragnhildur Kjartansdóttir – 0/2
  • Krístína Davíðsdóttir – 0/2
  • Arna Friðjónsdóttir – 1/1
  • Inga Aradóttir – 1/0
  • María Eiríksdóttir – 1/0
  • Heiður Atladóttir – 0/1
  • Bríet Friðjónsdóttir – 0/1

Julianna Thomson – 18/20 (90%)

Fjölnir:

  • Elísa Sigfinnsdóttir – 1/1
  • Harpa Kjartansdóttir – 1/1
  • Eva Hlynsdóttir – 0/2

Karítas Halldórsdóttir – 24/31 (77,4%)

(Bjarni Baldursson)

Samantekt helgarinnar

Helgin sýndi að baráttan í deildinni er hörð og engin leikur er gefinn. Markverðir helgarinnar áttu stórleik, sérstaklega Julianna Thomson sem hélt markinu hreinu í föstudagsleiknum og alls 96,4% markvörslu yfir helgina. Það er ljóst að spennan fyrir úrslitakeppninni Toppdeild kvenna heldur áfram að magnast.

Einungis þrír leikir eru eftir í Toppdeild kvenna og sá næsti er núna á fimmtudaginn klukkan 19:45 þegar Fjölnir fær SR í heimsókn upp í Egilshöll.

Share This