SHD Selects Iceland – fyrstu ferð verkefnisins lokið

by | 6 maí, 2026 | Fréttir, Grasrótin

Dagana 29. apríl – 5. maí 2026 tók fyrsti hópurinn undir merkjum SHD Selects Iceland þátt í U13 Youth Cup í Bordeaux í Frakklandi. 

Hópurinn var skipaður ellefu drengjum fæddum á árunum 2012–2014 úr Skautafélagi Akureyrar, Skautafélagi Reykjavíkur og Fjölni. Þjálfari liðsins var Sölvi Freyr Atlason, fararstjóri var Karítas Sif Halldórsdóttir og liðsstjóri var Stefán Ari Sigurðsson. 

Ferðin hófst með næturflugi frá Keflavík til Frankfurt og þaðan áfram til Bordeaux. Strax á komudegi spilaði liðið vináttuleik við heimalið Bordeaux Boxers, sem nýttist vel til að hrista hópinn saman áður en mótið hófst. 

Á mótinu mætti íslenska liðið sterkum frönskum og spænskum félagsliðum. Drengirnir unnu þrjá leiki, gerðu eitt jafntefli og enduðu að lokum í 5. sæti af 12 liðum. Liðið var fámennasta lið mótsins, með aðeins ellefu leikmenn og einn markvörð, en sýndimikinn karakter, góða liðsheild og sterka frammistöðu. 

Ferðin var jafnframt mikilvæg utan íss. Leikmenn sem vanalega mætast sem andstæðingar heima á Íslandi fengu tækifæri til að ferðast, spila og mynda lið saman undir nafni Íslands. Hópurinn fékk einnig að upplifa einstaka gestrisni heimamanna, skoða Bordeaux og taka þátt í skemmtilegu alþjóðlegu mótaumhverfi. 

SHD Selects Iceland er samstarfsverkefni allra þriggja íshokkídeilda landsins undir verkefnastjórn og stuðningi ÍHÍ. Alls fara fjórir hópar á mót í verkefninu í ár – tveir drengjahópar og tveir stúlknahópar – og eru næstu ferðir framundan í maí, júní og júlí. 

Öll mótin eru á vegum eða skipulögð í samstarfi við World Hockey Group, þar sem Sergei Zak er í forsvari. Sergei er íslensku íshokkífólki góðu kunnur sem fyrrum leikmaður og þjálfari hjá Birninum á sínum tíma. 

Markmið verkefnisins er að skapa ungum íslenskum leikmönnum fleiri tækifæri til að keppa erlendis, kynnast öðru leiktempói og undirbúa sig betur fyrir framtíðar landsliðs- og afreksstarf. 

Hér er hægt að lesa alla ferðasöguna frá Bordeaux: SMELLIÐ HER TIL AÐ SKOÐA

Share This