Samkvæmt fróðustu mönnum í íshokkíhreyfingunni á Íslandi var sett mett í vítakeppninni umtöluðu milli Skautafélags Reykjavíkur og Fjölnis í gærkvöldi.
Liðin tóku 42 vítí í vítakeppninni áður en Flosrúnu Jóhannesdóttur tókst að tryggja Fjölni sigurinn og tvö stig.
Þar sem þessar tölur eru með ólíkindum þá hafa eflaust einhverjir velt því fyrir sér hvert heimsmetið sé hvað þetta varðar. Eftir því sem næst verður komist hafa vítin flest orðið 50 í einni og sömu vítakeppninni í íshokkí. Alla vega hjá körlunum.
Frétt um það má í það minnsta finna frá árinu hjá Alþjóða íshokkísambandinu. Gerðist það í leik tveggja U18 ára karlaliða í svissnesku deildinni en þá mættust EHC Biel og Geneve Futur og voru þá 50 víti tekin eins og áður segir.
Til gamans má nefna að dæmi eru um að 40 víti hafi þurft til að ná fram niðurstöðu í leik í NHL-deildinni amerísku. Gerðist það árið 2014 hjá Florida Panthers og Washington Capitals.
Myndatexti: Julianna Thomson markvörður SR.
Ljósmynd/Hafsteinn
