Myndatexti: Gunnar þjálfari er enginn taðskegglingur.
Ljósmynd/Hafsteinn Snær
Gunnar Guðmundsson, þjálfari Fjölnis, telur að Íslandsmót karla í vetur gæti orðið eitt það skemmtilegasta í langan tíma miðað við leiki haustsins.
„Þetta er rosalega jafnt og jafnara heldur en á síðasta tímabili sem dæmi. Liðin eru að skipta stigum á milli sín og litlu munar í töflunni. Akureyringar hafa farið í þrjár framlengingar í vetur og það sýnir held ég hversu jöfn deildin er,” segir Gunnar í samtali við íshokkí.is.
„Ég held að þetta geti orðið eitt skemmtilegasta tímabil í langan tíma og verði tímabil þar sem öll liðin eru fullir þátttakendur í toppbaráttunni. Einnig er gaman að hafa U20 ára liðið með sem fjórða liðið. Það mun bæði styrkja landsliðsstrákana okkar, og U20 landsliðið sem slíkt, en þetta er lið sem gæti klárlega stolið stigum af hinum liðunum á góðum degi.”
Mestar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Fjölnis af liðunum í deildinni. Liðið missti marga leikmenn til Danmerkur fyrir keppnistímabilið en hefur endurheimt fjóra þeirra. Fyrir vikið horfa hokkíspekingar nú öðrum augum á möguleika Fjölnismanna heldur en þeir gerðu síðasta sumar.
„Eftir síðasta tímabil langaði marga leikmenn að spreyta sig erlendis og nokkrir fóru til Danmerkur. Þótt þeir hafi skilið eftir sig skarð í okkar röðum þá studdum við þá heils hugar í því. Við stöndum með okkar mönnum og vissum að á einhverjum tímapunkti myndum við fá þá tvíeflda aftur í Fjölni. Við bjuggumst þó ekki við því að fá þá aftur á þessum tímapunkti en tökum þeim fagnandi og þeir smella vel inn í hópinn hjá okkur,” segir Gunnar en um er að ræða þá Freyr Waage, Hektor Hrólfsson, Pétur Inga Egilsson og Viktor Jan Mojzyszek.
Hvalreki við fjörur Grafarvogs
Í ljósi þessa þurfa Fjölnismenn væntanlega að vera þolinmóðir á meðan liðið slípast til?
„Já já og við vissum að það yrði á brattann að sækja í upphafi tímabilsins að vera án þessara stráka. Þeir fengu stóru hlutverk hjá okkur á síðasta tímabili og uxu þá gríðarlega sem leikmenn. Ég var spenntur fyrir því að sjá þá vaxa og dafna enn frekar í vetur og það er hvalreki að fá þá aftur heim. Sérstaklega þar sem okkur vantaði fleiri sóknarmenn. Á móti kemur að við erum með góða leikmenn sem eru ekki leikfærir. Viggó Hlynsson hefur verið frá og Falur Guðnason handleggsbrotnaði í leik gegn SA sem dæmi. Þegar meiðslin fara að gera vart við sig þá er eins gott að vera með breiðan og öflugan hóp.”

Myndtatexti: Fjölnismenn fagna marki gegn SR í Laugardal.
Ljósmynd/Egill Egilsson
Hvenær telur Gunnar að Viggó Hlynsson verði leikfær?
„Ég myndi segja að það væri gott ef hann nær að spila nógu mikið fyrir áramót til að hjálpa liðinu verulega. Ég vona að allt gangi vel en ætla ekki að reikna með honum af fullum krafti fyrr en á nýju ári. Hann var meiddur allt síðasta tímabil en er einn besti sóknarmaður á landinu þegar hann er heill.”
6 skoruð mörk skiluðu ekki stigi
Áhorfendur á Íslandsmótinu hafa skemmt sér yfir því að sjá markaveislu í mörgum leikjum sem af er á tímabilinu. Gunnar bendir á að lið geti ekki fengið látlaust á sig mörk ef það ætlar að safna stigum.
„Það er ekki sjálfbært að þurfa að skora 6 eða 7 mörk til að vinna hokkíleiki. Við skoruðum 6 mörk á dögunum gegn SA en vantaði samt 2 upp á til að jafna þá! Þetta er ekki alveg eðlilegt en það er alveg ljóst að liðin geta öll bætt varnarleikinn og stutt betur við markverðina. Þótt svona markaleikir séu skemmtilegir fyrir áhorfendur þá eru þeir afar erfiðir fyrir liðin að spila. Það er ekki auðvelt að búa til mörk í íshokkí og það tekur á að skora mörg mörk,” segir Gunnar Guðmundsson þjálfari Fjölnis en í leikjunum gegn SR og SA hefur Fjölnir unnið tvo leiki, annan eftir framlengingu, en tapað þremur, einum eftir framlengingu. Auk þess hefur liðið unnið báða leikina gegn U20 ára liðinu.
Viðtöl við þjálfarana í Topp-deild kvenna birtast á næstunni þegar fleiri leikir hafa verið spilaðir.
