Fyrsta svokallaða ofurhelgin í Topp deild karla verður um helgina og hefst annað kvöld en að þessu sinni verða leikirnir þrír í Skautahöllinni í Laugardal.
Á tímabilinu verða þrjár ofurhelgar þar sem spiluð er heil umferð á föstudegi til sunnudags. SR-ingar eru fyrstu gestgjafarnir og hinar ofurhelgarnar eru þá hjá SA og Fjölni eðli málsins samkvæmt.
Dagskráin þessa ofurhelgina er þá þessi:
SR – SA, föstudagur klukkan 19:45
SA – Fjölnir, laugardagur klukkan 16:45
SR – Fjölnir, sunnudagur klukkan 19:45.
Ekki er þá öll sagan sögð því einn leikur er á dagskrá í Topp deild kvenna. Verður hann leikinn á laugardeginum og kemur í beinu framhaldi af karlaleiknum. Þá mætast SR og SA klukkan 19:45 einnig í Laugardalnum.
SR – SA, laugardagur klukkan 19:45.
Íshokkí.is óskar íshokkíunnendum góðrar skemmtunar.
Ljósmynd/Hafsteinn
Myndatexti: Frá leik SR og SA í Laugardalnum á dögunum.
