Upplifði loksins útisigur

by | 26 okt, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Finninn Jere Kokkailainen réði úrslitum í leik SR og Fjölnis í gærkvöldi þegar hann skoraði gullmark í framlengingu og tryggði Fjölni 5:4 sigur og 2 stig í Topp-deild karla.

Kokkailainen virtist vera létt þegar Íshokkí.is spjallaði við hann að leiknum loknum í Laugardalnum frekar en hann væri hátt uppi eftir dagsverkið.

„Loksins. Eftir eitt og hálft ár á Íslandi upplifði ég loksins sigur á útivelli. Tilfinningin sem því fylgir er afskaplega góð,“ sagði Kokkailainen en hann skoraði einnig jöfnunarmarkið á næstsíðustu mínútu leiksins og knúði þar með fram framlengingu.

„Við lögðum mikið á okkur til að jafna leikinn og þetta féll fyrir okkur í þetta skiptið. Við vorum ekki tilbúnir í slaginn í fyrsta leikhlutanum en þá tókum við okkur saman í andlitinu. Okkur tókst að vinna leikinn og ég er fyrst og fremst afskaplega ánægður með sigurinn,“ sagði Kokkailainen og nefndi einnig að það væri sálrænt sterkt að ná sigri eftir að lenda þremur mörkum undir.

Sjá umfjöllun um leikinn

Myndatexti: Finninn bíður átekta fyrir framan mark SR í leiknum í gær.

Ljósmynd/Egill Egilsson

 

 

Share This