Minnka þarf sveiflurnar í leik liðsins

by | 5 nóv, 2026 | Fréttir, Greinar, Toppdeild Karla

Myndatexti: Emil að lokinni undirskrift á Akureyri í sumar.

Ljósmynd/SA

Emil Alengård tók við stjórnartaumunum hjá SA Víkingum fyrir tímabilið. Eftir að liðið tapaði illa fyrir hans gamla liði Fjölni í upphafi Topp-deilar karla hefur SA sótt í sig veðrið. Liðið hefur unnið bæði Fjölni og SR auk þess að fara tvívegis í framlengingu á móti SR. Íshokkí.is tók Emil tali þegar ofurhelgin stóð yfir á dögunum og spurði hann út í gang mála.

„Gengi liðsins hefur verið upp og niður í upphafi tímabilsins. Við erum á vegferð og vitum að hverju við viljum stefna varðandi spilamennsku liðsins. Við erum enn að byggja upp og skipuleggja. Við viljum sjá stöðugleika bæði á æfingum og í leikjum en það hefur verið upp og ofan. Við höfum ekki náð heilum góðum leik ennþá,“ segir Emil í samtali við íshokkí.is og smám saman geti hann og leikmennirnir gert leik liðsins heilsteyptari.

„Við þurfum að hafa örlítið betri tök á leikjunum til að minnka sveiflurnar og gætum alveg verið klókari. Mér finnst að við séum að taka skref í rétta átt og vona að við getum haldið því áfram. Ég hef trú á því og liðið er ekki orðið eins gott og það getur orðið.“

Myndatexti: Leikur Fjölnis og SA var mikill markaleikur en lauk með sigri SA 8:6.

Ljósmynd/Hafsteinn Snær

Mikið hefur verið skorað í mörgum leikjum SA en þó hélt liðið hreinu í heimaleik gegn meisturunum í SR [í 6:0 sigri] og má segja að það hafi komið mörgum á óvart.

„Þá náðum við góðum leik og liðið varðist mjög vel í þeim leik. Þegar maður rýnir í tölfræði úr leikjunum þá sér maður að andstæðingarnir fá of mörg góð marktækifæri á móti okkur. Við gefum of oft færi á okkur út af mistökum sem við gerum. Við getum unnið í því bæði sem lið og einstaklingar.“

Nýju mennirnir fljótir að aðlagast

Akureyringar fengu nýlega mikinn liðsstyrk þegar tveir leikmenn bættust í hópinn. Akureyringurinn Birkir Rafn Einisson og eistneski landsliðsmaðurinn Daniil Fursa en þeir létu strax að sér kveða í markaskorun.

„Fyrst og fremst eru þetta fínir strákar og smella vel inn í hópinn. Það er alltaf góð byrjun þegar menn finna sig fljótt í nýju hlutverki á nýjum stað og það auðveldar þeim sem fyrir eru að koma þeim inn í okkar kerfi. Á ísnum koma þeir með mikla getu, og ákveðið sjálfsöryggi, sem hjálpar okkar því það vantaði aðeins hjá okkur. Þetta lofar því mjög góðu,“ segir Emil en hvernig kom það til að Fursa kom til SA?

„Ég er í samskiptum við einhverja umboðsmenn og félagið líka. Þar fór þetta af stað eins og yfirleitt er.“

Myndatexti: Fursa fagnar marki fyrir SA.

Ljósmynd/Hafsteinn Snær.

Hann reiknar ekki með því að fleiri breytingar verði gerðar á leikmannahópnum hjá SA.

„Ég er ekki að hugsa um neitt annað en leikmannahópinn eins og hann er núna. Ég hugsa ekki út í hvort eitthvað gæti átt eftir að gerast varðandi leikmannahópinn og einbeiti mér að því að bæta spilamennskuna.“

Tekur eitt skref í einu

Emil fluttist norður með fjölskylduna í sumar og tók við sem þjálfari beggja liðanna hjá Skautafélagi Akureyrar. Hann kann vel við sig hjá félaginu en hjá SA eru menn vanir því í gegnum árin að vinna Íslandsmótið. Er ekki alltaf krafa á Akureyri að SA verði meistari?

„Menn vilja klárlega vinna og mig vantar ekki keppnisskapið heldur. En ég hugsa um fleira því ég vil sjá liðið spila vel og vil sjá leikmennina bæta sig. Ég vil sjá okkur taka skref í rétta átt og það getur þá leitt til þess að liðið vinni bikara. Ég horfi frekar á þetta í skrefum og ef þetta heldur áfram að þróast í rétta átt þá koma sigrarnir.“

Hjá Skautafélagi Akureyrar er unnið mikið og gott starf. Iðkendafjöldinn er til að mynda mikill hjá börnum og unglingum. Sér Emil mikinn efnivið á Akureyri?

„Já klárlega. Barnastarfið er mjög flott og vel er tekið á móti nýjum iðkendum. Starf félagsins hefur verið byggt vel upp. Barnastarfið snýst samt sem áður fyrst og fremst um að æfingarnar séu skemmtilegar og að krakkarnir hafi gaman að því sem þau eru að gera. Ef þau eru ánægð þá koma hæfileikaríkir leikmenn út úr því. Þannig er það bara þegar iðkendafjöldinn er mikill.“

Skautarnir verða á hillunni

Emil er líklega snjallasti íshokkíleikmaður sem spilað hefur fyrir Ísland og var afar drjúgur í sókninni fyrir landsliðið á sínum tíma. Kitlar það ekkert að vera á leikskýrslu og skipta sjálfum sér inn á í power play?

„Ég á reyndar svolítið erfitt með að svara þessu alfarið neitandi,“ segir Emil og hlær að spurningunni. „Stundum hefur maður hugsað um hvort maður hefði átt að spila lengur en nú er ég samt að nálgast fertugt. Þótt Ingvar [Þór Jónsson] hafi spilað vel fram yfir fertugt þá er það sjaldgæft en reyndar ekki ómögulegt. En ég er ekkert að velta því fyrir mér að taka fram skautana. Löngunin er hjá mér snýst um að hjálpa þessum strákum að bæta sig og að vinna með þeim þannig að þeir geti gert sem mest úr sínum ferli,“ segir Emil Alengård.

Viðtal við þjálfara Fjölnis birtist á næstu dögum og í síðar viðtöl við þjálfarana í Topp-deild kvenna þegar fleiri leikir hafa verið spilaðir. 

Viðtal við þjálfara SR

Share This