Mikilvæg 3 stig hjá SR

by | 21 nóv, 2026 | Fréttir, Toppdeild Karla

Myndatexti: SR-ingar fagna marki í Grafarvoginum í kvöld.

Ljósmynd: Egill Egilsson

Íslandsmeistararnir í Skautafélagi Reykjavíkur nældu í þrjú mikilvæg stig í Egilshöllinni í kvöld þegar SR vann Fjölni 4:2 í Topp deild karla.

Með þessum úrslitum hafa SA og SR slitið sig ögn frá Fjölni en SA er með 19 stig eftir 9 leiki og SR er með 17 stig eftir 8 leiki. SR getur því komist á toppinn þar sem liðið á leik inni. Fjölnir er með 12 stig eftir 9 leiki en liðið hefur tapað síðustu tveimur leikjum gegn SA og SR. Eftir útisigur gegn SR á ofurhelginni stimplaði Fjölnir sig vel inn en gæti nú verið að dragast aftur úr. En deildin hefur nú ekki verið beinlínis fyrirsjáanleg hingað til og Grafarvogsbúar hafa væntanlega ekki sagt sitt síðasta orð og eru auk þess enn að spila mannskapinn saman.

Viðtal við þjálfara Fjölnis

Gestirnir úr SR voru ekki lengi að finna netmöskvana þegar Eduard Kascak kom þeim yfir strax á 3. mínútu og var staðan 1:0 að loknum fyrsta leikhlutanum.

Gamla kempan Egill Þormóðsson bætti við marki fyrir SR en Egill skoraði og gaf stoðsendingu í kvöld.

Kristján Jóhannesson minnkaði muninn skömmu síðar fyrir Fjölni en Níels Hafsteinsson kom SR í 3:1. Annar leikhlutinn var afar fjörugur og fyrirliðinn Kári Arnarsson skoraði fjórða markið fyrir SR á 37. mínútu.

Jere Koikkalainen skoraði fyrir Fjölni á 45. mínútu og gaf liðinu von en mörkin urðu þó ekki fleiri jafnvel þótt nokkrar brottvísanir ættu eftir að líta dagsins ljós.

Myndatexti: Egill Þormóðsson (fyrir mðri mynd) skoraði og lagði upp fyrir SR í kvöld.

Ljósmynd: Egill Egilsson.

Mörk Fjölnis: Kristján Jóhannesson, Jere Koikkalainen.

Stoðsendingar: Gabríel Egilsson 2, Jere Koikkalainen, Róbert Pálsson.

Mörk SR: Eduard Kascak, Egill Þormóðsson, Níels Hafsteinsson, Kári Arnarsson.

Stoðsendingar: Kári Arnarsson, Gabríel Camiilo, Kári Arnarsson, Níel Hafsteinsson, Haukur Steinsen, Ævar Arngrímsson, Egill Þormóðsson.

Leikur #19

föstudaginn 20. nóvember 2026 kl.19:45


Fjölnir

2

gegn

4


Skautafélag Reykjavíkur

1. Lota

Tími
Lið
Atvik
00:00
Markmaður á ís

#31 jóhann björgvin ragnarsson

00:00
Markmaður á ís

#1 þórir aspar

02:33
🔔 MARK (0 - 1, EQ)

#14 eduard kascak, Stoð: #19 kári arnarsson, #67 gabriel camiilo gunnlaugsson

05:21
🔴 Brot (2 mín, Ákeyrsla við batta)

#23 hakon magnusson

12:09
🔴 Brot (2 mín, Halda)

#8 ævar arngrímsson

17:53
🔴 Brot (2 mín, Halda)

#94 miks janozols

2. Lota

Tími
Lið
Atvik
22:09
🔴 Brot (2 mín, Fella)

#15 viktor svavarsson

22:45
🔔 MARK (0 - 2, PP1)

#61 egill thormodsson, Stoð: #19 kári arnarsson, #15 níels hafsteinsson

23:39
🔴 Brot (2 mín, Fella)

#9 robert palsson

24:13
🔔 MARK (1 - 2, PP1)

#4 kristjan johannesson, Stoð: #23 jere koikkalainen, #92 gabriel egilsson

25:52
🔔 MARK (1 - 3, EQ)

#15 níels hafsteinsson, Stoð: #95 haukur steinsen, #8 ævar arngrímsson

36:17
🔴 Brot (2 mín, Fella)

#16 tryggvi snaevarsson

36:17
🔔 MARK (1 - 4, EQ)

#19 kári arnarsson, Stoð: #61 egill thormodsson

39:04
🔴 Brot (2 mín, Fella)

#21 pétur maack

3. Lota

Tími
Lið
Atvik
44:30
🔔 MARK (2 - 4, EQ)

#23 jere koikkalainen, Stoð: #9 robert palsson, #92 gabriel egilsson

46:10
🔴 Brot (2 mín, Fella)

Leikmaður finnst ekki

48:42
🔴 Brot (5 mín, Ákeyrsla við batta)

#15 viktor svavarsson

48:42
🔴 Brot (20 mín, Áfellisdómur)

#15 viktor svavarsson

51:07
🔴 Brot (2 mín, Grófur leikur)

#94 miks janozols

51:07
🔴 Brot (2 mín, Grófur leikur)

#21 pétur maack

56:39
🔴 Brot (2 mín, Of margir á ís)

#84 hektor hrólfsson

59:43
Leikhlé

-

60:00
Markmaður af ís

#1 þórir aspar

60:00
Markmaður af ís

#31 jóhann björgvin ragnarsson

Share This